Myndband sem kaffihúsið Skool Beans í Vík hefur birt af fólki við hættulegar aðstæður í Reynisfjöru hefur vakið hörð viðbrögð, svo vægt sé til orða tekið. Með myndbandinu er spurt hvort ljósmyndin sé virkilega áhættunnar virði. Í athugasemdum vilja sumir loka fjörunni, aðrir tala um náttúruval og ein gengur svo langt að leggja til að fólkinu verði ekki bjargað.
„Er ljósmyndin virkilega þess virði?“ spyr Skool Beans í færslunni, sem birt er á ensku. Undir henni lýsa bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn undrun sinni yfir því að fólk skuli fara svo nærri sjónum.
„Fólk er fífl“
Ómar Geirsson sparar ekki orðin:
„Fólk er fífl.“
Lárus Ólafsson vill „loka þessu strax“ og Svanhvít Hallgrímsdóttir skrifar:
„þvílíkt rugl..ekki í lagi með svona fólk..“
Guðríður Traustadóttir gengur lengra í gagnrýni sinni:
„Sleppa því að bjarga svona fólki“.
Ragnar Egilsson beinir hins vegar spjótum sínum að landeigendum og spyr hvort græðgi ráði því að þeir geti ekki lokað fjörunni í einn dag.
Fleiri gera gys að hegðun fólksins með vísunum til „náttúruvals“ og svokallaðra Darwin verðlauna, en það gefur í skyn að fólk sé að deyja á heimskulegan hátt.
Vilja upplýsingar frekar en lokun
Ekki eru allir sammála kröfum um að loka fjörunni. Finn Rasmussen segir að ekki eigi að loka náttúrunni heldur upplýsa fólk og leyfa því að velja sjálfu.
Thomas Winstone gerir einnig lítið úr hættunni í myndbandinu og segir fólkið aðeins hafa blotnað í fæturna. Hann telur viðbrögðin ýkt.
Aðrir leggja áherslu á að viðvaranirnar séu skýrar. Kathleen Ahearn Garrett bendir á að skiltin séu þarna af góðri ástæðu og Todd-Katy Crow segist þekkja hættuna af öldunum í Reynisfjöru þótt hann búi í Kansas í Bandaríkjunum.
Ferðamenn lýsa ólíkri upplifun
Nokkrir sem hafa heimsótt fjöruna segja aðstæður hafa verið allt aðrar þegar þeir voru þar. Sumir lýsa tiltölulega lygnum sjó og öldum sem náðu mun skemmra upp á ströndina.
Marina Tsiklitira segist hafa verið þar vikuna áður í rigningu og vindi og haldið sig í mjög öruggri fjarlægð. Hún hafi horft á myndbönd um hættuna áður en hún kom.
Crystal Pastien bendir á að hægt sé að nota zoomið“ í símanum til að ná myndum án þess að setja sig að óþörfu í hættu.
Öldurnar geta komið eftir langan rólegan kafla
Á upplýsingasíðu SafeTravel um Reynisfjöru er varað við því að einstakar öldur geti skyndilega náð miklu lengra upp á ströndina en þær sem á undan komu. Slíkt geti gerst eftir langan kafla með litlum öldum.
Við innganginn eru viðvörunarskilti og ljósakerfi sem sýnir hættustig. SafeTravel brýnir fyrir gestum að halda sig langt frá sjónum, snúa aldrei baki í hafið og virða lokanir. Öflugar öldurnar geti hrifið fullorðna manneskju út á sjó á örfáum sekúndum.