Lögreglan á Suðurnesjum lagði hald á rúmlega hálft kíló af kókaíni eftir að hafa stöðvað bifreið í hefðbundnu umferðareftirliti þann 1. október síðastliðinn. Fíkniefnin fundust meðal annars í Bónuspoka undir farþegasæti bifreiðarinnar og Ajax-brúsa í farangursgeymslunni.Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar frá því á þriðjudag þar sem staðfest var áframhaldandi gæsluvarðhald yfir öðrum tveggja manna sem handteknir voru í tengslum við málið.
Hefðbundið umferðareftirlit á Suðurnesjum endaði með stórum kókaínfundi