Það væri „hneyksli fyrir lýðræðið“ ef leiðtogar Evrópusambandsríkjanna koma sér saman um næstu sjö ára fjárhagsáætlun ESB áður en Frakkar ganga að kjörborðinu í forsetakosningunum í apríl og mikilvægar kosningar verða annars staðar í Evrópu á næstu misserum.
Þetta var meðal þeirra eindregnu skilaboða sem Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar kom á framfæri á blaðamannafundi hér í Brussel í gærkvöldi, í aðdraganda leiðtogafundar Evrópusambandsins sem hófst í dag - þar sem einmitt þessi fjárhagsáætlun er á dagskrá: leiðtogar Evrópusambandsins og ýmissa aðildarríkja hafa þrýst á um að megindrættir þessarar áætlunar verði frágengnir fyrir áramót, svo hægt verði að útfæra smáatriðin á næsta ári, áður en áætlunin tekur gildi í ársbyrjun 2028.
Fulltrúar um fjörtíu fjölmiðla mættu á þennan blaðamannafund Le Pen sem haldinn var undir kvöld, eftir að hún hafði setið fund með öðrum leiðtogum evrópskra stjórnmálaflokka sem sameinast á Evrópuþinginu undir merkjum flokkahópsins Föðurlandsvinir fyrir Evrópu (Patriots for Europe).
Í þeim hópi má meðal annars finna Geert Wilders frá Hollandi, Viktor Orban, fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands og Andrej Babiš, forsætisráðherra Tékklands.
Vill setja þak á framlag Frakka í sameiginlega sjóði ESB...
Le Pen ítrekaði á blaðamannafundinum það sem hún hefur áður sagt; að árlegt framlag Frakka til Evrópusambandsins ætti að takmarkast við fimm milljarða evra, sem er talsvert miklu lægra en það sem Frakkar hafa greitt á undanförnum árum; árið 2023 var framlag Frakka um 23 milljarðar evra - það næst hæsta meðal aðildarríkja (á eftir Þýskalandi). Á móti kemur að Frakkar hafa á undanförnum árum fengið til baka í kringum 15 milljarða evra í styrki, meðal annars til landbúnaðar.
Le Pen vill að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins dragi saman seglin í umsvifum sínum og starfsemi. „Framkvæmdastjórnin verður að hætta að starfa á sviðum sem eru utan valdssviðs hennar, eins og í heilbrigðisgeiranum og öryggismálum. Frakkar mun ekki lengur sætta sig við að [framkvæmdastjórnin] beiti sér á alþjóðasviðinu, eða á sviði hernaðarmála eins og hún virðist vilja gera,“ sagði Le Pen á blaðamannafundinum í gær.
...og hætta að styðja Úkraínu fjárhagslega
Frönsk stjórnvöld hafa á undanförnum árum stutt dyggilega við bakið á Úkraínu í kjölfar allsherjarinnarásar Rússa vorið 2022. Le Pen segir Frakka ekki lengur hafa efni á þessum stuðningi. „Ég held að við þurfum að vera hreinskilin við Zelensky og segja að Frakkland er ekki lengur í aðstöðu til að halda áfram fjárhagslegum stuðningi við Úkraínu,“ sagði Le Pen. „Við erum sammála um að halda áfram að þjálfa úkraínska hermenn, og styðja þá hernaðarlega, en við getum ekki lengur fjármagnað Úkraínu.“
Virðist fullviss um sigur í kosningunum í vor
Það kom skýrt fram hjá Le Pen í gær að hún er meðvituð um bága stöðu ríkisfjármála í Frakklandi; tillagan um niðurskurð á framlögum til Evrópusambandsins er hluti af þeim aðgerðum sem hún myndi ráðast í sem forseti - og þótt hún hefði tekið það skýrt fram að það væri kosningabarátta í gangi og að kosningar myndu eiga sér stað, þá talaði Le Pen á stundum eins og hún væri nú þegar komin með umboð.
„Það eru rúmir sex mánuðir þar til fyrri umferð [kosninganna] fer fram, en við munum sigra. Við erum fullviss um að Frakkar vilja raunverulegar breytingar og stefnu sem verður ólík þeirri sem rekin hefur verið undanfarin þrjátíu ár undir mismunandi nöfnum.“