Vísir hefur fjallað um leyfisveitingar til fyrirtækisins Rastar sem stendur að þessum rannsóknum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafnaði umsókn Rastar um rannsóknarleyfi í maí í fyrra á þeim forsendum að ekki væri til neinn lagarammi um rannsóknir af því tagi sem Röst vildi stunda í Hvalfirði. En utanríkisráðuneytið venti þá óvænt kvæði sínu í kross og veitti leyfið.
Haraldur Eiríksson, eigandi Hökla ehf., leigutaka Laxár í Kjós, hefur lýst yfir þungum áhyggjum af þessum fyrirætlunum auk þess sem hann telur hér um vafasama stjórnsýslu að ræða. Leyfið sé veitt á þeim forsendum að fyrir liggi tillaga til lagabreytingar sem opnar á svona rannsóknir. Málið hafi ekki fengið þinglega meðferð.
Karl Gauti er ekki sáttur og segir vítissódann ætandi og hættulegt efni. Forsvarsmenn verkefnisins telji hann geta bundið koltvísýring í Hvalfirðinum og þannig komið loftslaginu til góða.
„Ekki virðist nógu vel tekið mið af því að Íslendingar skara fram úr á heimsvísu í notkun endurnýjanlegra og vistvænna orkuauðlinda eins og við öll vitum. Nei, við eigum auðvitað að vera tilraunastofa heimsins í þessum efnum og ef vítissódi gæti bjargað heiminum úr þessum kröggum þá er best að gera tilraunir með efnið hér, rétt við höfuðborg heimsmeistaranna, í lokuðum firði þar sem finna má rómaðar laxveiðiár og dýrlegt lífríki.“
Karl Gauti sagði að ekki virtist sem tillit væri til þess tekið að framleiðsla og flutningur á vítissóda kalli á umtalsverða losun á koltvísýringi þannig að verkefnið að því leyti sé mengandi og skaðlegt fyrir loftslagið.
„Ekki er ljóst hvort kolefnið sem verkefnið á að binda sé meira en framleiðsla og flutningur á sama efni losa. Kostnaðurinn við þessa tilraun hlýtur að reiknast sem hluti af þeim útgjöldum sem við verjum til loftslagsaðgerða en undanfarin ár hafa tugir eða hundruð milljarða runnið eftirlitslítið úr vasa skattgreiðenda í þessu skyni.“
Ekki fari mikið fyrir eftirliti með ráðstöfun þessara útgjalda og leyfði Karl Gauti sér að ítreka það sem hann hefur áður sagt: „Að upplýsingar um mælanlegan árangur af ráðstöfun þessa geipifjár hafa ekki fengist frá stjórnvöldum þótt vitaskuld eigi skattgreiðendur fullan rétt á slíkum upplýsingum.“
Karl Gauti sagði í lok sinnar ræðu Hvalfjörðinn dýrmæta náttúruperlu og hann mótmælir því harðlega að fjörðurinn skuli nú verða lagður undir tilraunaverkefni með eiturefni, eins og hann orðar það.