Hart var tekist á um erfðafjárskatt á Alþingi í gær þegar Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mælti fyrir frumvarpi um afnám skattsins. Markmið frumvarpsins er að afnema skattinn með öllu og að Ísland skipi sér þar með í hóp með öðrum vestrænum ríkjum, svo sem Noregi og Svíþjóð.Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi tillöguna harðlega og sagði hana fela í sér milljarða skattalækkun sem kæmi fyrst og fremst þeim efnamestu til góða. Þá liggi ekki fyrir nein útfærsla frá Sjálfstæðisflokknum um hvað eigi að gera í staðinn.
Hart tekist á um erfðafjárskattinn – Rósa vill hann burt og segir ríkið skattleggja syrgjandi fjölskyldur