Tökur á nýrri þáttaröð hófust fyrr í þessum mánuði, en Ari Eldjárn og Jóhann Alfreð Kristjánsson munu þar snúa aftur sem stjórnendur þáttanna. Að vanda verða keppendur fimm talsins og verða hinir þrír kynntir til leiks hér á Vísi á næstu dögum.
Berglind Alda er þekkt fyrir að stýra Krakkakviss og fyrir hlutverk sín í kvikmyndinni Ljósbrot og sjónvarpsþáttunum Húsó og Venjulegu fólki. Hún hlaut Grímuverðlaun árið 2026 sem leikkona ársins í aukahlutverki fyrir túlkun sína á Ófelíu í Hamlet í Borgarleikhúsinu og þessa dagana má sjá hana í sýningunni Svikasögum í sama leikhúsi.
Auðunn, sem jafnan er kallaður Auddi, varð þjóðþekktur í 70 mínútum og Strákunum. Hann hefur leikið í Svínasúpunni, Steypustöðinni og kvikmyndinni Leynilöggu og hlaut, ásamt samstarfsfólki sínu, Edduverðlaun árið 2022 fyrir þáttaröðina Tónlistarmennirnir okkar. Þá er hann liðsmaður og prímusmótor FM95BLÖ.
Í Taskmaster Ísland mæta fimm íslenskir skemmtikraftar og grínistar til leiks og keppa í óvæntum og oft furðulegum þrautum sem krefjast útsjónarsemi, hugmyndaauðgi og húmors. Allt er þetta gert í nafni heiðurs og hláturs en einnig til að finna út hver verður hinn eini sanni þrautakóngur þáttaraðarinnar.
Hægt er að horfa á fyrstu þáttaröðina á streymisveitunni Sýn+ og í opinni dagskrá á Sýn.