Sænska þingið hafnaði í morgun tillögu um að gera Magdalenu Andersson, leiðtoga Jafnaðarmanna, að forsætisráðherra í minnihlutastjórn með þeim eina flokki innanborðs.
99 greiddu atkvæði með tillögunni, 248 greiddu atkvæði gegn og tveir sátu hjá. Sundurliðun atkvæða hefur ekki verið gefin út formlega enn, en Jafnaðarmenn eiga 99 þingmenn á sænska þinginu.
Það þýðir að gera þarf enn aðra atrennu að stjórnarmyndun í landinu þegar mánuður er liðinn frá kosningum. Andersson hefur reynt tvisvar áður og mistekist. Þegar hún kynnti niðurstöður stjórnarmyndunarviðræðna í vikunni sagði hún að enginn möguleiki væri á meirihlutastjórn eins og sakir standa.
Forseti sænska þingsins, sem veitir umboð til stjórnarmyndunar, ætlar að ræða við formenn flokka á sænska þinginu og ræða næstu skref. Ef ekkert gengur gæti þurft að kjósa á ný.
Sænsku þingkosningarnar í síðasta mánuði voru spennandi nær allt til síðasta atkvæðis. Rauðgræna blokkin, sem hallast til vinstri, fékk 176 þingmenn og blágræna blokkin, sem hallast til hægri, fékk 173.
Erfitt hefur þó reynst að sætta sjónarmið innan rauðgrænu blokkarinnar við stjórnarmyndunarviðræður þrátt fyrir að þingmeirihluti sé til staðar. Flokkar innan rauðgrænu blokkarinnar voru meðal þeirra sem kusu gegn tillögunni í dag.