Raina Dagesh-Kamara er aðstoðarframkvæmdastjóri Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna – World Food Program. Hún segir stofnunina aldrei hafa staðið frammi fyrir öðrum eins niðurskurði og á þessu ári.
Aðeins örfáar þjóðir, þeirra á meðal Íslendingar, standa við gefin fyrirheit en langflestar stærstu þjóðir heims hafa skorið framlög sín til neyðaraðstoðar og lengri tíma verkefna hressilega niður. Bandaríkjamenn hafa ætíð greitt mest til stofnunarinnar af öllum og gera það enn, en þeir hafa þó skorið niður framlög sínu verulega, um 46% á milli áranna 2024 og 2025 svo dæmi sé tekið.
Tölur um þá sem skortir nauðsynlega næringu eru auðvitað á reiki en samkvæmt upplýsingum Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna eru tölurnar þessar:
- 645 milljónir manna glíma við langvarandi hungur, það er að segja fá ekki reglulega nægilega næringu til að uppfylla lágmarksorkuþörf sína.
- 266 milljónir manna í 47 löndum eru í bráðri neyð vegna fæðuskorts. Þar er matvælaóöryggi orðið svo alvarlegt að þörf er á tafarlausri mannúðaraðstoð til að koma í veg fyrir hungursneyð og frekara mannfall.
- Innan þess hóps var áætlað að um 41 milljón manna myndi búa við neyðarástand eða enn verri aðstæður árið 2025. Þar af voru nokkur hundruð þúsund manns í hörmulegum hunguraðstæðum eða aðstæðum sem jafnast á við hungursneyð.