Rósa Björg Karlsdóttir greindist með langt gengið krabbamein í endaþarmi, ristli, leghálsi og eitlum haustið 2009. „Ferlið að greiningu hafði verið mjög þungt og erfitt,“ segir Rósa Björg. „Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi, en ég labbaði á milli lækna ítrekað. En svarið var alltaf það sama: þú ert ung og þú ert heilbrigð. Einn sagði mér að fara að hreyfa mig meira og hætta að drekka kók.“
Rósa gekk milli lækna með langt gengið krabbamein: „Einn sagði mér að fara að hreyfa mig meira og hætta að drekka kók“