Stytting vinnuvikunnar kostar ríkissjóð um 6,9 milljarða króna á ári miðað við verðlag í ár. Kostnaðaraukinn er fyrst og fremst rakinn til styttingar vinnutíma vaktavinnufólks, en samanlagður kostnaður frá innleiðingu breytinganna er talinn nema um 35 milljörðum króna.Morgunblaðið greinir frá þessu í dag og vísar í skýrslu fjármála- og efnahagsráðherra sem lögð hefur verið fram á Alþingi að beiðni Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og fleiri þingmanna.
Guðlaugur Þór setur spurningarmerki við styttingu vinnuvikunnar – Milljarðar í húfi