Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í nýrri færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social að olíuleit hæfist brátt á Grænlandi. Hann staðhæfði jafnframt að hvergi annars staðar í heiminum sé jafn mikla olíu að finna.
Fréttaveitan Ritzau hefur það eftir utanríkisráðuneyti Danmerkur að olíuleit muni aðeins fara fram innan ramma grænlenskrar löggjafar. Bandarískir fjárfestar hafi ekki forgangsrétt að auðlindum Grænlands og enga breytingu á því fyrirkomulagi sé að finna í nýundirrituðum samningi Grænlands, Bandaríkjanna og Danmerkur.
Þá hefur Jørgen Hammeken-Holm, sviðsstjóri umhverfis-, auðlinda- og orkustofnunar Grænlands, sagt að langt sé í að hægt verði að leggjast í viðamikla olíuleit.
Yfirlýsing mögulega tengd væntanlegum kosningum
Danska ríkisútvarpið bendir þó á í umfjöllun um málið að þótt nýi varnarsamningurinn nái ekki til olíuborana Bandaríkjamanna þýði það ekki að þeir hafi gefið slíkar fyrirætlanir upp á bátinn.
Á Austur-Grænlandi hefur bandarískt olíuverkefni til að mynda vakið mikla umræðu. Þar þrýsta bandarískir fjárfestar á að fá leyfi til olíuvinnslu og njóta þeir stuðnings forseta síns. Einnig er bent á að viðvarandi áhugi Trump á Grænlandi hafi stuðlað að miklum fjárfestingum landa hans í ýmsum verkefnum tengdum námugreftri.
Í ljósi þess að blekið er vart þornað á samningi landanna þriggja freistast þó margir til að spyrða færslu Trump við væntanlegar kosningar í Bandaríkjunum og síhækkandi olíuverð.