„Það var kannski mesti hvellurinn á Siglufirði en það var ansi hvasst á Húsavík líka og við sinntum þó nokkrum fokverkefnum þar,“ segir Jón Þór í samtali við fréttastofu.
Jón Þór segir að á Siglufirði hafi tugir verið við störf, sveitir af Tröllaskaga og niður í Eyjafjörð.
„Það var ansi bratt og tók á. Þegar heilu þökin lyftast af húsum og lenda við hliðina á þér þá gengur eitthvað á, það er alveg ljóst,“ segir hann og að það hafi skapast aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“.
Tré rifnaði upp við leikskóla
Hann segir ekki jafn hvasst hafa verið á Húsavík en þar hafi tré rifnað upp við leikskólann og þurfti að tryggja nokkrar byggingar svo ekki yrði tjón.
Hann segir nóttina hafa verið rólega og engin útköll í nótt.
„Það var aðeins í gærkvöldi verið að tryggja bát við höfn á Skagaströnd, en annars rólegt.“
Viðvaranir enn í gildi
Gular viðvaranir eru enn í gildi á Ströndum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi. Veðurfræðingur segir veðrið að mestu leyti hafa gengið eftir en verið verra á sumum stöðum en spár gerðu ráð fyrir.