Síldarvinnslan hefur selt Samherja uppsjávarskipið Bjarna Ólafsson. Skipið, sem smíðað var árið 1999, hefur verið verkefnalaust síðan það var sett á sölu í upphafi árs 2024. Frá þessu greina fyrirtækin á vefsíðum sínum.
Í sumar var Bjarni Ólafsson hins vegar óvænt tekinn aftur í þjónustu þegar annað uppsjávarskip Síldarvinnslunnar, Barði, tjónaðist verulega. Þá kom upp eldsprenging í vélarrúmi skipsins á leið þess frá Færeyjum og litlu mátti muna að illa færi.
Bjarni Ólafsson hefur verið gerður út á síld og kolmunna í fjarveru Barða en á þriðjudaginn tóku nýjir eigendur við skipinu í Neskaupstað þaðan sem það hélt rakleiðis á síldveiðar.