Írski rithöfundurinn Sally Rooney segist vera tilneydd til að taka bækur sínar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við samtökin Palestine Action, sem bresk stjórnvöld hafa sett á bannlista með vísan í hryðjuverkalög. Þetta hefur breski fréttamiðillinn Guardian eftir höfundinum.
Rooney hefur ekki farið leynt með stuðning sinn við málstað Palestínu og á síðasta ári sagðist hún myndu styrkja Palestine Action með ágóða af bókasölu sinni, en samtökin eru ekki bönnuð í heimalandi hennar, Írlandi. Í skilningi laganna braut hún hins vegar gegn hryðjuverkalögunum í Bretlandi.
Væri ólöglegt að afhenda höfundargreiðslur
Vegna þessa hefur Rooney aflýst ferð til Bretlands til að taka við verðlaunum af ótta við að verða handtekin. Þá hefur Faber, útgefandi hennar þar í landi, ákveðið í samráði við Rooney að taka bækur hennar úr sölu.
Vegna laganna væri ólöglegt fyrir útgefandann að afhenda henni greiðslur sem vitað væri að rata myndu til Palestine Action. Rooney segist ekki hafa snúist hugur og hún taki þeim afleiðingum sem hljótast af skoðunum hennar.
Bækur Rooney hafa notið fádæma velgengni en meðal þekktra bóka sem hún hefur skrifað eru Conversations with Friends og Normal People, sem báðar hafa verið þýddar á íslensku og heita Okkar á milli og Eins og fólk er flest. Samnefndir þættir byggðir á síðarnefndu bókinni fóru sigurför um heiminn þegar þeir voru fyrst sýndir árið 2020.
Bannið fer fyrir hæstarétt
Talið er að meira en 3.700 manns hafi verið handteknir í Bretlandi fyrir meintan stuðning við samtökin síðan bannið gegn þeim tók gildi í júlí á síðasta ári. Flestir þeirra voru handteknir fyrir að veifa spjöldum með áletruninni „Ég er á móti þjóðarmorði, ég styð Palestine Action“.
Um það bil 2.500 manns hafa verið ákærðir en ekkert málanna hefur enn þá komið til kasta dómstóla þar sem bannið verður tekið fyrir hjá hæstarétti í næsta mánuði.