Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að eftir smá grennslan hafi komið í ljós að meintir þjófar höfðu brotist inn, stolið munum og sett þá í bílinn. Síðan skildu þeir bílinn og sömuleiðis munina eftir á vettvangi. Bíllinn reyndist líka vera stolinn.
Tilkynningin barst lögreglumönnum á varðsvæði lögreglustöðvar eitt sem sér um vesturhluta Reykjavíkur og Seltjarnarnes. Þeim barst einnig tilkynning um umferðarslys þar sem ekið var á staur. Bíllinn reyndist óökuhæfur og var brak og olía á vettvangi. Tveir voru í bílnum og voru þeir fluttir til aðhlynningar á sjúkrahúsi.
Lögreglan hafði þá afskipti af gesti á veitingastað sem hafði borðað og drukkið en neitaði síðan að borga fyrir veitingarnar. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.
Veðrið setti einnig sinn svip á störf lögreglunnar og þurftu lögreglumenn á varðsvæði tvö, sem sér um Hafnarfjörð og Garðabæ, að elta uppi trampólín sem var á ferðinni niður götu. Haft var uppi á trampólíninu og það tryggt.
Einn var handtekinn af lögreglunni eftir að hafa verið stöðvaður grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna. Lögreglumennirnir komu auga á meint fíkniefni í bifreiðinni. Var viðkomandi því handtekinn grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna.