Ólíklegt þykir að sjór flæði yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal. Vegagerðin og björgunarsveitir voru viðbúnar því að veginum yrði lokað því ölduhæð varð meiri en spár gerðu ráð fyrir.
G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir í samtali við fréttastofu á tíunda tímanum að sjór sé tekinn að hopa og því ósennilegt að flæði yfir veginn. Mbl.is sagði frá því fyrr í kvöld að flætt hefði að iðnaðarbyggingum austast í bænum og að björgunarsveitin Víkverji hafi staðið í rýmingum.