Tíu þingmenn úr Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki kalla eftir skýrslu frá Ölmu Möller heilbrigðisráðherra um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum. Markmiðið er að kalla fram heildstæða mynd af gæðum þjónustu á heimilunum og eins hvort stjórnvöld hafi næg gögn og mælikvarða til þess að fylgjast með þeim.
Þingmennirnir segja að nýleg umfjöllun Kveiks um geðlyfjanotkun á hjúkrunarheimilum sé einn mælikvarði sem geti varpað ljósi á lyfjamiðaða umönnun, lyfjaöryggi og aðgengi að öðrum úrræðum, þótt það sé ekki meginviðfangsefni skýrslubeiðninnar.
Á næstu árum stendur fyrir dyrum talsverð fjölgun hjúkrunarrýma og því þykir fyrirspyrjendum brýnt að meta innihald og gæði þjónustu, ekki síður en fjölda rýma. Fjölgunin þurfi að leiða til öruggrar, faglegrar og einstaklingsmiðaðrar þjónustu sem auki lífsgæði íbúanna.
Svo bæta megi þjónustuna segja þingmennirnir stjórnvöld þurfa að hafa samanburðarhæfar upplýsingar um ýmsa þætti á borð við öryggi, lyfjaöryggi, þjónustu við fólk með heilabilun og samstarf við aðstandendur.
Greina þurfi alvarleg atvik og slys og finna leiðir til að koma í veg fyrir þau, fremur en að horfa aðeins til fjölda þeirra, með umbætur í verklagi, aðbúnaði og umönnun að leiðarljósi.
Meðal þeirra þátta sem þingmennirnir vilja að fjallað verði um í skýrslunni eru öryggi og heilsufarsleg gæði, lyfjaöryggi og lyfjanotkun, bið eftir hjúkrunarrými og samanburður á gæðum milli hjúkrunarheimila.
Beiðnin kemur frá þeim Ingibjörgu Isaksen, Þórarni Inga Péturssyni, Sigurði Inga Jóhannssyni, Stefáni Vagni Stefánssyni, Höllu Hrund Logadóttur, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, Jóni Gunnarssyni, Bryndísi Haraldsdóttur, Karli Gauta Hjaltasyni og Jens Garðari Helgasyni.