Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér tilkynningu þar sem foreldrar eru varaðir við VPN-stillingu, sem rúmlega 300 ungmenni nota til að falsa aldur sinn. Þessi stilling gerir ókunnugum kleift að lesa og breyta netumferð barnanna.Lögreglan hefur nú til rannsóknar mál sem varðar sölu á fölsuðum rafrænum skilríkjum, en einn hefur verið handtekinn vegna málsins og er grunaður um að hafa selt hundruðum ólögráða ungmenna fölsuð skilríki. Þetta fer fram með þeim hætti að ungmenni kaupir aðgengi að vef eða að snjallsímaforriti fyrir iPhone.
Lögreglan varar foreldra við : Yfir 300 ungmenni með fölsuð rafræn skilríki sem gætu haft alvarlegar afleiðingar