Samkeppnisaðilar Ölgerðarinnar segja fyrirtækið markvisst reyna að útiloka vörur sínar á börum, veitingahúsum, útihátíðum og hjá nemendafélögum. Þetta er meðal þess sem kom fram í Kveik í gærkvöld en í þættinum var veitt innsýn í viðskiptahætti fyrirtækisins sem er eitt það stærsta sinnar tegundar hér á landi.
Samkeppniseftirlitið hefur hafið rannsókn á háttsemi Ölgerðarinnar á drykkjarvörumarkaði og réðst í húsleit á skrifstofum Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar fyrir helgi. Til skoðunar er hvort fyrirtækið sé í markaðsráðandi stöðu á viðkomandi mörkuðum og hvort fyrirtækið hafi virt bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu.
En telst Ölgerðin markaðsráðandi á drykkjarvörumarkaði, að einhverju eða öllu leyti?
Í byrjun síðasta árs var greint frá kaupum Ölgerðarinnar á fyrirtækjunum Gæðabakstri og Kjarnavörum. Samkeppniseftirlitið ákvað að aðhafast ekki vegna samrunans. Í ákvörðuninni er hins vegar ítarlega fjallað um mögulega markaðsráðandi stöðu Ölgerðarinnar á drykkjarvörumarkaði og þar kemur fram að fyrirtækið sé með allt að 80% hlutdeild á ákveðnum sviðum markaðarins. Samkeppniseftirlitið fullyrðir ekki að fyrirtækið sé markaðsráðandi en segir þó:
„Ölgerðin hefur háa markaðshlutdeild í drykkjarvöru, bæði áfengri og óáfengri, þar sem hlutdeildir yfir 50% gefa löglíkur fyrir markaðsráðandi stöðu.“
Í skriflegu svari til Kveiks sögðust forsvarsmenn Ölgerðarinnar ekki hafa forsendur til að meta nákvæmlega hvort fyrirtækið væri markaðsráðandi, enda hefði fyrirtækið ekki áreiðanlegar upplýsingar um stærð annarra aðila á markaði.
Í Kveik í gær var sýnd kynning sem Ölgerðin lét gera í samningaviðræðum við lítinn veitingastað sem var opnaður á höfuðborgarsvæðinu í fyrra.
Í kynningunni fer Ölgerðin ítarlega yfir sterka stöðu sína á markaði. Þar kemur meðal annars fram að sex af tíu mest seldu gosdrykkjum á landinu séu frá Ölgerðinni og að fyrirtækið sé með 56 prósenta hlutdeild á þeim markaði. Kristall sé langstærsta vörumerkið í kolsýrðum vatnsdrykkjum og að heildarhlutdeild Ölgerðarinnar í vatnsdrykkjum sé tæp 90 prósent.
Þá sé Collab, sem Ölgerðin framleiðir, vinsælasti orkudrykkurinn. Í kynningunni segir að Gull Lite sé langmest seldi bjórinn í ÁTVR með 2,7 milljónir seldra lítra 2024, sem sé um sextíu prósentum meira en keppinauturinn Víking gylltur.
Þá kemur fram að fjórir af fimm mest seldu bjórunum í Vínbúðinni séu frá Ölgerðinni. Ölgerðin sé með um 50 prósenta markaðshlutdeild í bjór á Íslandi en Coca-Cola sé með 23 prósent.
Samkeppniseftirlitið leggur sektir á fyrirtæki sem brjóta 11. gr. samkeppnislaga nema brotið teljist óverulegt eða af öðrum ástæðum sé ekki talin þörf á slíkum sektum til að stuðla að og efla virka samkeppni.
Samkeppniseftirlitið tekur sérstaklega fram að verðlækkun sé almennt æskileg í samkeppni. Hún getur hins vegar orðið vandamál ef markaðsráðandi fyrirtæki beitir undirverðlagningu eða sértækum verðlækkunum til að veikja keppinauta. Það þurfi því að skoða aðstæður, samninga og áhrif hegðunarinnar, ekki aðeins hvort fyrirtæki hafi boðið afslátt.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, hefur ekki viljað svara hvað eftirlitinu hafa borist mörg erindi sem tengjast Ölgerðinni. Málið sé til skoðunar en ekki verði veittar frekari upplýsingar um rannsóknina að svo stöddu.
Fréttin hefur verið uppfærð.