Alfreð Ásberg, framkvæmdastjóri Sambíóanna, segir að sem viðskiptavinur Ölgerðarinnar í 14 ár þá finnist honum umfjöllun Kveiks um fyrirtækið gefa of einhliða mynd af fyrirtækinu og þeirra viðskiptaháttum, þeir hafi ekki gert neinar kvaðir á bíóið að hætta að selja Coca-Cola.Í þætti Kveiks í gærkvöldi var rætt við forsvarsmenn handverksbrugghúsa og smærri innflutningsaðila sem saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu, bæði hvað varðar sölu áfengis og annarra drykkja.
Framkvæmdastjóri Sambíóanna stígur fram með sína reynslu af Ölgerðinni