Að­eins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann of­beldi - Vísir

Að­eins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann of­beldi - Vísir

Að­eins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann of­beldi - Vísir

Andri og fimm aðrir, þar á meðal barnsmóðir hans, tengdafaðir og bróðir, hlutu fangelsisdóma á mánudag fyrir að frelsissvipta mann, kúga úr honum fé, ræna hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti í Biskupstungum í apríl 2024.

Fórnarlambið var maltneskur leigjandi Sigurðar Gunnars Ásgeirssonar, garðyrkjumeistara, sem Sigurður taldi að skuldaði sér leigu. Frelsissviptingunni lauk ekki fyrr en kvalarar mannsins höfðu rænt hátt í átján milljónum króna af bankareikningi hans og svo neytt hann úr landi. Í ákæru sagði að það hefði verið með hótunum um að þeir ynnu dóttur hans mein.

Dómurinn var kveðinn upp á mánudag en hann var ekki birtur í heild sinni fyrr en í gær. Í honum má lesa það mat dómara við Héraðsdóm Suðurlands að Andri hafi stýrt atburðarásinni, sem hefði ekki átt sér stað án hans, og átt stærstan þátt í henni. Aðrir sakborningar hafi farið að vilja Andra sem hafi tekið allar ákvarðanir. 

Allir sakborningarnir neituðu sök í málinu nema barnsmóðir Andra sem játaði brot þótt hún gengist ekki við öllum lýsingum í ákæru á hendur henni.

Andri Már Mortenssen Birgisson, átta ára fangelsi.

Ingunn Rut Sigurðardóttir, barnsmóðir Andra Más, þriggja ára fangelsi.

Sigurður Gunnar Ásgeirsson, faðir Ingunnar og tengdafaðir Andra, tveggja og hálfs árs fangelsi.

Pétur Már Mortenssen Birgisson, bróðir Andra, þriggja ára fangelsi.

Níels Pálmar Benediktsson, eins árs fangelsi.

Halldór Logi Sigurðsson, hálfs árs fangelsi.

Hlutur Andra

Andri gaf ekki skýrslu fyrir dómi og hjá lögreglu þóttist hann ekki kannast við margt þess sem honum var gefið að sök. Sakfelling hans fyrir líkamsárás, langvarandi frelsissviptingu í ávinningsskyni, ólögmæta nauðung, rán, þjófnað á bíl brotaþola og peningaþvætti byggðist meðal annars á framburði brotaþola, hinna sakborninganna og upptökum úr síma hans.

Dómurinn taldi að Andri hefði fengið þá Níels og Halldór með sér í Reykholt. Eftir að þeir „beiluðu“, með orðum Andra, hefði hann fengið Ingunni og Pétur austur.

„Er augljóst af hljóðupptökum úr síma ákærða Andra, þar sem heyra má samtöl hans við aðra í málinu, að hann stjórnaði atburðarásinni og gaf öðrum ákærðu fyrirmæli sem þau fóru svo eftir,“ segir í dómnum.

Talið var hafið yfir vafa að Andri hefði beitt brotaþola ofbeldi með því að slá hann í andlit eða höfuð hans. Við það hefði brotaþoli nefbrotnað og hlotið brot á kjálka. 

Ekki var talið hægt að eigna sakborningnum tiltekin ofbeldisverk umfram þetta. Því var Andri ekki sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás sem allt að sextán ára fangelsisrefsing hefði legið við.

Andri var talinn drifkrafturinn í frelsissviptingunni og þeirri ólögmætu nauðung sem fórnarlambið sætti. Hann hefði einnig gerst sekur um rán þegar ofbeldið og hótanirnar sem hann beitti fórnarlambið gerðu honum kleift að millifæra fé af reikningi þess á eigin reikninga og annarra sakborninga.

„Er fráleitur og að engu hafandi framburður sem gefinn var hjá lögreglu að brotaþoli hafi verið að gefa þessa peninga, hvort heldur sem er vegna þakklætis eða af öðrum ástæðum,“ segir í dómnum.

Andri var einnig sakfelldur fyrir vopnalagabrot vegna ýmis konar vopna sem fundust á heimili hans og Ingunnar við húsleit. Dómurinn vísaði frá ákærunni vegna hluta þeirra muna sem fundust á heimilinu.

Refsing Andra var ákveðin átta ár enda var hann sakfelldur fyrir langstærstan hluta þeirra brota sem honum voru gefin að sök. Brot hans voru sögð framin í hagnaðarskyni, af einbeittum ásetningi og af algeru skeytingarleysi gagnvart heilsu, velferð og frelsi brotaþola.

Hlutur Níelsar og Halldórs

Um hlut þeirra Níelsar Pálmars Benediktssonar og Halldórs Loga Sigurðssonar, sem fylgdu Andra inn á heimili fórnarlambsins, taldi dómurinn augljóst að þeim hefði ekki getað dulist að brotaþoli væri frelsissviptur og beittur ólögmætri nauðung, hvort sem þeir hefðu haft ásetning til þess eða ekki.

„Með nærveru sinni og því að vera með ákærða Andra í íbúðinni og fylgja honum í frelsissviptingunni og þeirri ólögmætu nauðung sem brotaþoli mátti sæta tóku þeir í framkvæmd fullan þátt í frelsissviptingunni og hinni ólögmætu nauðung og er hafið yfir skynsamlegan vafa að þeir hafa gerst sekir um hana,“ segir í niðurstöðukafla dómsins.

Dómurinn gaf lítið fyrir skýringar Halldórs um að hann hefði ekki verið viðstaddur þar sem hann hefði farið úr bíl Andra og Níelsar í Mosfellsbæ á leið austur í Reykholt. Gögn málsins sýndu að bílnum hefði alls ekki verið ekið í gegnum Mosfellsbæ heldur hefðu sakborningarnir ekið austur Hellisheiði og haft viðkomu í Hveragerði.

Hvorki þótti sannað að Níels né Halldór hefðu tekið þátt í ofbeldisverkum Andra. Halldór var þó talinn hafa bundið hendur mannsins með límbandi. Ekki var heldur talið sannað að þeir hefðu tekið þátt í langvarandi frelsissviptingu á meðan þeir voru á vettvangi eða að hún væri í ávinningsskyni.

Tvímenningarnir voru sakfelldir fyrir frelsissviptingu og ólögmæta nauðung. Níels hlaut eins árs fangelsisdóm en Halldór Logi sex mánuði. Sá síðarnefndi hlaut fimm ára fangelsisdóm í fyrra fyrir tilraun til manndráps í Reykjanesbæ.

Ránshluta ákærunnar á hendur þeim tveimur var vísað frá dómi.

Hlutur Sigurðar

Sigurður, leigusali fórnarlambsins og tengdafaðir Andra, hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm. Hann neitaði allri sök og sagðist raunar hafa verið grunlaus um allt það sem gekk á í húsi hans.

Dómurinn taldi þó hafið yfir vafa að á einhverjum tímapunkti hefði Sigurði ekki dulist að leigjandi hans væri frelsissviptur á heimili sínu og að honum hefði verið fullljóst hvers vegna. Til hefði staðið að kúga fé úr leigjandanum með góðu eða illu og að hluti fjárins hefði átt að renna til Sigurðar.

Framburður Sigurðar um að hann hefði ekki haft nokkra stjórn á atburðarásinni og ekki getað haft áhrif á hana þótti ekki trúverðugur. Atburðarásin hefði hafist með samtali Sigurðar við dóttur sína og tengdason um innheimtu ætlaðrar húsaleiguskuldar leigjandans sem dómurinn taldi ósannað að hefði verið til staðar.

Sigurður Gunnar Ásgeirsson taldi sig eiga inni leigu hjá maltneskum leigjanda sínum. Tengdasonur hans frelsissvipti leigjandann í slagtogi við fleiri og kúguðu út úr honum fé í Reykholti í Biskupstungum.Vísir/Vilhelm

Þá hefði Sigurður komið að minnsta kosti tvisvar inn á heimilið helgina sem frelsissviptingin stóð yfir. Einnig lægju fyrir upptökur úr síma Andra þar sem hann heyrðist segja tengdaföður sínum að hann ætlaði með leigjandann í hraðbanka, láta hann taka út peninga og skilja hann svo eftir.

Sigurður var þannig talinn hafa gerst sekur um frelsissviptingu og ólögmæta nauðung gagnvart leigjandanum. Einnig var hann sakfelldur fyrir peningaþvætti vegna fjármuna sem Andri millifærði á hann af reikningi fórnarlambsins. Hann var hins vegar sýknaður af fjárkúgun.

Ekki þótti sannað að Sigurður hefði tekið þátt í ofbeldisverkum eða haft ásetning til þess að aðrir beittu brotaþola ofbeldi. Einnig var hann sýknaður af ákæru um hlutdeild í þjófnaði á bíl brotaþola.

Leigjandinn sakaði Sigurð um að hafa hótað sér með keðjusög og að vera hent í sjóinn en dómurinn taldi ekki hægt að sakfella hann fyrir hótanir þar sem öðrum sönnunargögnum um þær væri ekki til að dreifa.

Hlutur Ingunnar

Ingunn, dóttir Sigurðar og barnsmóðir Andra, hlaut þriggja ára dóm. Hún gekkst að hluta til við brotum sem henni voru gefin að sök í ákæru. Gekkst hún við frelsissviptingu og ólögmætri nauðung en hafnaði því að hafa beitt brotaþola ofbeldi eða að hann hefði verið bundinn þegar hún var á staðnum.

Þá neitaði hún einnig í yfirlýsingu að hafa rænt manninn þar sem hún hefði hvorki tekið þátt í að beita hann ofbeldi né hóta honum til þess að kúga fé úr honum „þótt ég geri mér fyllilega grein fyrir því að miklir fjármunir í hans eigu voru teknir af honum með saknæmum og ólögmætum hætti“.

Ingunn Rut Sigurðardóttir, barnsmóðir höfuðpaursins, hlaut þriggja ára dóm fyrir aðild sína að fjárkúgun í Reykholti.Vísir/Anton Brink

Ingunn var meðal annars ákærð fyrir að kýla fórnarlambið með hnúajárni. Dómurinn taldi ósannað að Ingunn hefði beitt hann ofbeldi. Fullljóst væri að Ingunn hefði vitað um ofbeldið sem maðurinn var beittur en ósannað að hún hefði haft ásetning um að hann yrði beittur því eða hótað honum sjálf.

Því var Ingunn sýknuð af fjárkúgun en sakfelld fyrir frelsissviptingu, ólögmæta nauðung, þjófnað á bíl brotaþola og peningaþvætti. Hún var einnig sakfelld fyrir vopnalagabrot vegna vopnanna sem fundust á heimili hennar og Andra og fyrir vörslu á kannabisefnum. Áður hafði Ingunn hlotið eins mánaðar skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir líkamsárás árið 2024.

Dómurinn sagði Ingunni eina sakborninga hafa sýnt einhverja iðrun og axlað einhverja ábyrgð. Þrátt fyrir það hefðu brot hennar verið framin af skeytingarleysi fyrir frelsi, velferð og heilsu brotaþola.

Hlutur Péturs

Pétur, bróðir Andra, hlaut þriggja ára fangelsisdóm. Hann hélt því fram að hann hefði ekki haft neitt val um að taka þátt í gjörningi bróður síns. 

Dómurinn féllst á að það væri sennilega rétt að Pétur, sem var átján ára þegar brotin voru framin, hefði borið ótta í brjósti gagnvart Andra. Sá ótti breytti því ekki að honum hefði verið fullljóst að brotaþoli hefði verið sviptur frelsi. 

Pétur hefði tekið þátt í frelsissviptingunni með nærveru sinni og síðar með því að aka um með brotaþola í bíl sínum. Hann hefði tvisvar farið af vettvangi en komið aftur í bæði skipti sjálfviljugur.

Einn sakborninga Reykholtsmálsins þegar mállið var þingfest í mars.Vísir/Vilhelm

Hann var sakfelldur fyrir þátttöku í frelsissviptingu, ólögmætri nauðung, þjófnað á bifreið brotaþola og peningaþvætti. Eins og hinir sakborningarnir utan Andra var Pétur sýknaður af ákæru um ofbeldi og fjárkúgun.

Hins vegar vísaði dómurinn á bug skýringum Péturs um að hann hefði ekkert vitað eða skilið af því sem fór fram þessa aprílhelgi. Vísaði dómurinn í símtal bræðranna þegar þeir „böksuðu við“ að komast inn í heimabanka brotaþola þegar þeir höfðu ekki rafræn skilríki hans.

Pétur hefði meðal annars sagt bróður sínum: „Þú átt eftir að elska mig“ þegar hann leysti vandann um hvernig þeir ættu að komast yfir rafræn skilríki fórnarlambsins.

„Þarf ekkert að fjölyrða um það að a.m.k. frá þeim tímapunkti var ákærða Pétri ljóst hver var tilgangurinn með frelsissviptingunni, sem hann hélt þó áfram að taka þátt í,“ segir í dómnum.

Armbandsúr, hálskeðju og vopn gerð upptæk

Sakborningarnir voru dæmdir til þess að greiða fórnarlambinu sex milljónir króna í miskabætur. Andri, Ingunn, Pétur og Sigurður voru einnig dæmd til þess að greiða því rúmar fjórar milljónir í skaðabætur.

Lagt var hald á stóran kasthníf, kastöxi, tvær útdraganlegar járnkylfur og hnúajárn sem fundust á heimili Andra og Ingunnar.

Þá var lagt hald á rúma 279 þúsund krónur í reiðufé, fimm armbandsúr af dýrari gerðinni, hálskeðju og herrahring sem fundust á Andra og við leit í bifreið.

Andri Már Mortenssen Birgisson, átta ára fangelsi.

Ingunn Rut Sigurðardóttir, barnsmóðir Andra Más, þriggja ára fangelsi.

Sigurður Gunnar Ásgeirsson, faðir Ingunnar og tengdafaðir Andra, tveggja og hálfs árs fangelsi.

Pétur Már Mortenssen Birgisson, bróðir Andra, þriggja ára fangelsi.

Níels Pálmar Benediktsson, eins árs fangelsi.

Halldór Logi Sigurðsson, hálfs árs fangelsi.

#andri #aðeins #hafi #sannað #talið

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262948139d/adeins-talid-sannad-ad-andri-hafi-beitt-leigjandann-ofbeldi

📰 Aðrar fréttir

Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heima­til­búinn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heima­til­búinn - Vísir
Magnea samdi tillöguna sem fulltrúar meirihlutans, Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar, lögðu fram og var samþykkt í ráðinu í dag. „Tillaga...
Með gaddakúlu og sprautunálakylfu - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Með gaddakúlu og sprautunálakylfu - Vísir
Ákæran er birt í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hefur tekist að birta honum ákærurnar.  Í fyrstu ákærunni er honum gefið að sök að hafa veist að mann...
„Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
„Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ - Vísir
Um er að ræða undarlegt mál sem hefur farið eins og eldur í sinu samfélagsmiðla síðustu daga. Málið má rekja aftur til síðustu helgar þegar Clarkson h...
Sjórinn flæddi yfir bryggjuna á Skagaströnd
📅 14.10.2026 👁️ 0
Sjórinn flæddi yfir bryggjuna á Skagaströnd
„Það var flóð í hádeginu. Þá stóð pusið alveg yfir bryggjuna,“ segir Baldur Magnússon, hafnarvörður á Skagaströnd.Þar hafa hviður farið upp í allt að ...
„Það væri mjög miður“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
„Það væri mjög miður“ - Vísir
Þetta segir Finnbjörn Hermannsson í samtali við fréttastofu í morgun, rétt áður en þing Alþýðusambandsins hófst.  Þingið hófst klukkan tíu í morgun á ...
Litli spítalinn án samnings og ráð­herra sér ekkert svig­rúm - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Litli spítalinn án samnings og ráð­herra sér ekkert svig­rúm - Vísir
Litli spítalinn er einkarekin heilbrigðisþjónusta sem er í undirbúningi við Háaleitisbraut 68. Guðrún Ása Björnsdóttir sérfræðilæknir stendur að verke...
Brösugleg byrjun hjá nýjum tals­manni Trumps - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Brösugleg byrjun hjá nýjum tals­manni Trumps - Vísir
Zacharia er 42 ára gömul. Hún starfaði í skamman tíma fyrr á árinu sem talsmaður heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna og hefur verið gestur hjá bæði Fox...
Telur enga hættu stafa af strandaðri sjókví
📅 14.10.2026 👁️ 0
Telur enga hættu stafa af strandaðri sjókví
Tóma sjókví rak á land í Patreksfirði um miðjan september. Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, segir að þau viti af kvínni og eigend...
Kalla eftir skýrslu um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum
📅 14.10.2026 👁️ 2
Kalla eftir skýrslu um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum
Tíu þingmenn úr Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki kalla eftir skýrslu frá Ölmu Möller heilbrigðisráðherra um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum. Markmið...
Kallar 25 ára þak á verð­tryggð lán sýndar­mennsku - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 2
Kallar 25 ára þak á verð­tryggð lán sýndar­mennsku - Vísir
Þær tókust á um áformin í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Arna Lára er formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og Hildur á einnig sæti í nefndinn...
Fluttu til Íslands og náðu að spara 840 þúsund krónur á einum mánuði – „Með öllu inniföldu“
📅 14.10.2026 👁️ 1
Fluttu til Íslands og náðu að spara 840 þúsund krónur á einum mánuði – „Með öllu inniföldu“
Ung spænsk kona flutti til Íslands ásamt kærasta sínum til að vinna í veitingageiranum. Hún segist ná að spara mikinn pening í hverjum mánuði.Myndband...
Sally Rooney says her books will be removed from sale in UK over Palestine Action support
📅 14.10.2026 👁️ 1
Sally Rooney says her books will be removed from sale in UK over Palestine Action support
The Irish writer is best known for novels such as Normal People, Intermezzo and Conversations With Friends.
Le Pen boðar minni framlög Frakka til ESB
📅 14.10.2026 👁️ 2
Le Pen boðar minni framlög Frakka til ESB
Marine Le Pen, leiðtogi frönsku Þjóðfylkingarinnar, og mögulega næsti forseti Frakklands, segir að Frakkar ættu að skera niður framlög sín til Evrópus...
Security guards catch suspect after jewellery raid at Gran Canaria shopping centre
📅 14.10.2026 👁️ 2
Security guards catch suspect after jewellery raid at Gran Canaria shopping centre
Security guards caught and held a suspected robber after masked raiders used fire extinguishers and smashed display cabinets during a jewellery shop r...
Toilet paper and secret recorders: What we know about the arrest of the Saudi OpenAI engineer
📅 14.10.2026 👁️ 0
Toilet paper and secret recorders: What we know about the arrest of the Saudi OpenAI engineer
Abdulrahman Alfozan had worked for the AI giant for more than a year before he was arrested by the FBI.
Ríkið tók yfir vinsælustu fréttastöð Tyrklands
📅 14.10.2026 👁️ 2
Ríkið tók yfir vinsælustu fréttastöð Tyrklands
Lögreglan í Tyrklandi gerði rassíu í húsakynnum Halk TV, vinsælustu fréttastöð landsins, í morgun. Útsendingum var hætt og fólk hliðhollt stjórnvöldum...
Segja að Bandaríkin hjálpi núna Rússlandi
📅 14.10.2026 👁️ 1
Segja að Bandaríkin hjálpi núna Rússlandi
Segja að Bandaríkin hjálpi núna Rússlandi Úkra­ínskir emb­ætt­is­menn segja að Banda­ríkin hafi hótað að stöðva miðlun upp­lýs­inga um eld­flauga­skot...
Container ship sinks in Strait of Hormuz after being hit by projectile, Singapore says
📅 14.10.2026 👁️ 1
Container ship sinks in Strait of Hormuz after being hit by projectile, Singapore says
All 21 sailors on the Singapore-flagged GFS Pride were evacuated safely after it was hit by an projectile on Tuesday, maritime authorities say.
Saksóknari segir Russell Brand vera vægðarlausan nauðgara
📅 14.10.2026 👁️ 1
Saksóknari segir Russell Brand vera vægðarlausan nauðgara
Saksóknari í máli breska grínistans Russels Brand segir hann hafa verið vægðarlausan og einbeittan kynferðisbrotamann þegar aðalmeðferð í máli gegn ho...
Hvað er misnotkun á markaðsráðandi stöðu?
📅 14.10.2026 👁️ 2
Hvað er misnotkun á markaðsráðandi stöðu?
Samkeppnisaðilar Ölgerðarinnar segja fyrirtækið markvisst reyna að útiloka vörur sínar á börum, veitingahúsum, útihátíðum og hjá nemendafélögum. Þetta...
Segir Ölgerðina halda Red Bull frá börum – Pantaði Red Bull en fékk drykk frá Ölgerðinni
📅 14.10.2026 👁️ 1
Segir Ölgerðina halda Red Bull frá börum – Pantaði Red Bull en fékk drykk frá Ölgerðinni
Tveir af stærstu næturklúbbum landsins sögðust hafa fengið greiddar milljónir fyrir að eiga ekki viðskipti við umboðsaðila Red Bull. Þetta segir Friðj...
Ráðist inn í skóla og veist að nem­endum eða starfs­fólki - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Ráðist inn í skóla og veist að nem­endum eða starfs­fólki - Vísir
Kristín Björnsdóttir er formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Hún segir mikilvægt að tryggja öryggi bæði nemenda og starfsfólks. „Samfélagið hefur þróas...
How to find Cheap Flights to and from the Canary Islands
📅 14.10.2026 👁️ 3
How to find Cheap Flights to and from the Canary Islands
Whether you live on the islands and want to get back to the UK for Christmas, or you're planning a winter escape to Tenerife or Lanzarote, the price o...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Tommustokkurinn, spunagreindin og beislið
📅 14.10.2026 👁️ 3
Sigvaldi Einarsson skrifar: Tommustokkurinn, spunagreindin og beislið
Þegar ég var tólf ára fékk ég vinnu í gamalli og góðri byggingarvöruverzlun, og já, hún var skrifuð með zetu. Í búðinni voru tvö verkfæri sem mótuðu h...
Feðgar í málaferlum – Dánarbú föðurömmunnar dró dilk á eftir sér
📅 14.10.2026 👁️ 3
Feðgar í málaferlum – Dánarbú föðurömmunnar dró dilk á eftir sér
Sonur stefndi föður sínum fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og krafði hann um 10,6 milljónir króna vegna láns sem hann hafði veitt föðurömmu sinni til faste...
Lögreglan varar foreldra við : Yfir 300 ungmenni með fölsuð rafræn skilríki sem gætu haft alvarlegar afleiðingar
📅 14.10.2026 👁️ 2
Lögreglan varar foreldra við : Yfir 300 ungmenni með fölsuð rafræn skilríki sem gætu haft alvarlegar afleiðingar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér tilkynningu þar sem foreldrar eru varaðir við VPN-stillingu, sem rúmlega 300 ungmenni nota til að fa...
Afdrifaríkur flutningur á píanói - Reyndu árangurslaust að neita því að vinnuslys hefði átt sér stað
📅 14.10.2026 👁️ 2
Afdrifaríkur flutningur á píanói - Reyndu árangurslaust að neita því að vinnuslys hefði átt sér stað
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt flutningafyrirtæki til að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum um 1,6 milljónir króna í vangoldin laun auk dráttarv...
Framkvæmdastjóri Sambíóanna stígur fram með sína reynslu af Ölgerðinni
📅 14.10.2026 👁️ 2
Framkvæmdastjóri Sambíóanna stígur fram með sína reynslu af Ölgerðinni
Alfreð Ásberg, framkvæmdastjóri Sambíóanna, segir að sem viðskiptavinur Ölgerðarinnar í 14 ár þá finnist honum umfjöllun Kveiks um fyrirtækið gefa of ...
Svona var ástandið í fárviðrinu á Siglufirði
📅 14.10.2026 👁️ 3
Svona var ástandið í fárviðrinu á Siglufirði
Svona var ástandið í fárviðrinu á Siglufirði Vind­hviður fóru upp í 55 metra á sek­úndu. Brak var „á ferð og flugi“ um Siglu­fjörð í dag í fár­viðri, ...
Svona er ástandið í fárviðrinu á Siglufirði
📅 14.10.2026 👁️ 2
Svona er ástandið í fárviðrinu á Siglufirði
Svona er ástandið í fárviðrinu á Siglufirði Vind­hviður fóru upp í 55 metra á sek­úndu. Brak var „á ferð og flugi“ um Siglu­fjörð í dag í fár­viðri, þ...
Ó­þolandi leyndarhyggja ríki um niður­stöður PISA-prófa - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 3
Ó­þolandi leyndarhyggja ríki um niður­stöður PISA-prófa - Vísir
Jón Pétur var einn þeirra sem sté í pontu þingsins undir dagskrárliðnum „Störf þingsins“ og sagði að strax árið 2009 hefði Menntamálastofnun áttað sig...
Vill skýr við­brögð við trassa­skap í losunar­málum í lög - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 2
Vill skýr við­brögð við trassa­skap í losunar­málum í lög - Vísir
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær. Því er sagt ætlað að styrkja umgjörð loftslag...
Taskmaster Ís­land snýr aftur - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 3
Taskmaster Ís­land snýr aftur - Vísir
Fimm vandlega valdir keppendur hafa nú sett sig í stellingar fyrir upptökur á annarri þáttaröð íslensku útgáfunnar af hinum heimsfrægu skemmtiþáttum T...
Burnham careful before Zelensky meeting but promises Ukraine won't leave 'empty handed'
📅 14.10.2026 👁️ 2
Burnham careful before Zelensky meeting but promises Ukraine won't leave 'empty handed'
The UK's prime minister meets with Volodymyr Zelensky after a rocky week for the Ukraine president.
Burnham careful as he meets Zelensky but promises Ukraine won't leave 'empty handed'

Burnham treads carefully in Zelensky visit, balancing Trump and Ukraine
📅 14.10.2026 👁️ 0
Burnham treads carefully in Zelensky visit, balancing Trump and Ukraine
The UK's prime minister meets with Volodymyr Zelensky after a rocky week for the Ukraine president.
Beachgoers rescue sea turtle in Lanzarote
📅 14.10.2026 👁️ 3
Beachgoers rescue sea turtle in Lanzarote
A group of beachgoers rescued a loggerhead sea turtle at Caleta de Caballo beach in Lanzarote on Sunday after discovering the animal in need of assist...
Fjúkandi þök og talsvert tjón á Siglufirði
📅 14.10.2026 👁️ 3
Fjúkandi þök og talsvert tjón á Siglufirði
Siglufjörður virðist fara hvað verst út úr óveðrinu sem gengur yfir landið. Þar hefur vindur farið upp í 55 metra á sekúndum í hviðum.Samkvæmt tilkynn...
Vonskuveður í Færeyjum
📅 14.10.2026 👁️ 3
Vonskuveður í Færeyjum
Sama lægðakerfi og valdið hefur sögulega djúpri lægð hér á landi í morgun veldur einnig aftakaveðri í Færeyjum.Í Þórshöfn mælast yfir 20 metrar á sekú...
Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 2
Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent - Vísir
Meirihluti ráðsins samþykkti breytingarnar á fundi 12. október og vísaði þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar. Örn Arnarson, f...
Friðarverðlaunahafi Nóbels er með skilaboð til Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 3
Friðarverðlaunahafi Nóbels er með skilaboð til Trumps
Friðarverðlaunahafi Nóbels er með skilaboð til Trumps Banda­ríkin vilja rífa niður Alþjóð­lega saka­mála­dóm­stól­inn. Ísraelar líkja fyrr­ver­andi dó...
Bloggari tilkynnti eigið andlát - „Ef þú ert að horfa á þetta myndband þá er ég, því miður, ekki lengur hér“
📅 14.10.2026 👁️ 2
Bloggari tilkynnti eigið andlát - „Ef þú ert að horfa á þetta myndband þá er ég, því miður, ekki lengur hér“
Breski bloggarinn Charlie Anderson-Read er látin 41 árs að aldri eftir erfiða baráttu við krabbamein. Frá þessu greindi Charlie sjálf í myndbandi til ...
Ný yfirlýsing frá Réttrúnaðarkirkjunni: Hætta á að söfnuðurinn verði húsnæðislaus
📅 14.10.2026 👁️ 2
Ný yfirlýsing frá Réttrúnaðarkirkjunni: Hætta á að söfnuðurinn verði húsnæðislaus
Réttrúnaðarkirkjan segir raunverulega hættu vera á því að söfnuðurinn standi uppi án staðar til bænahalds þar sem leigusamningur um núverandi húsnæði ...
Einn handtekinn fyrir að selja hundruðum ungmenna fölsuð skilríki
📅 14.10.2026 👁️ 2
Einn handtekinn fyrir að selja hundruðum ungmenna fölsuð skilríki
Einn hefur verið handtekinn vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á sölu á fölsuðum rafrænum skilríkjum. Sá handtekni er grunaður um að h...
Lög­reglan varar for­eldra við „Island Surge VPN“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 3
Lög­reglan varar for­eldra við „Island Surge VPN“ - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Einn hefur verið handtekinn vegna málsins en hann er grunaður um að hafa selt hun...
Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni - Vísir

Russell Brand was a 'sexual predator', says prosecution as rape trial begins
📅 14.10.2026 👁️ 3
Russell Brand was a 'sexual predator', says prosecution as rape trial begins
The comedian and actor faces charges including rape and sexual assault from six female complainants who have never met each other, a court is told.
Russell Brand was a 'sexual predator', prosecution alleges as rape trial begins

Hætta á lengri biðlistum ef ekki fæst meira fé á fjárlögum
📅 14.10.2026 👁️ 2
Hætta á lengri biðlistum ef ekki fæst meira fé á fjárlögum
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er reiknað með að heildarútgjöld ríkissjóðs verði 1.765 milljarðar króna. Mikil áhersla er lögð á að skila hallala...
Hætta á lengri biðlistum ef ekki fæst meira fé í fjárlögum