Siglufjörður virðist fara hvað verst út úr óveðrinu sem gengur yfir landið. Þar hefur vindur farið upp í 55 metra á sekúndum í hviðum.
Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar á Norðurlandi eystra hafa skjólveggir fokið, rúður brotnað og bílar skemmst. Íbúum hefur verið leiðbeint að halda sig heima.
Þak fór af í heilu lagi af einbýlishúsi í bænum í morgun. Björgunarsveitir eru að störfum og tjónið talsvert.
Guðni Sveinsson, íbúi við Suðurgötu, segir óveðrið vera í stærri kantinum. Hann hefur búið í bænum í 70 ár. Hann segir nú reynt að bjarga því sem bjargað verður.
Hann flutti í Suðurgötu 1982 og hefur aldrei séð álíka tjón í götunni. Guðni tók þetta myndband í dag þegar hann skoðaði skemmdir.
Aðgerðastjórn lögreglunnar á Norðurlandi eystra hefur verið virkjuð sem og vettvangsstjórn á Siglufirði.
„Verið er að reyna að tryggja hluti og brak sem eru á ferð og flugi um bæinn. Nú er einnig farið að koma fram tjón vegna yfirborðsvatns,“ segir í tilkynningu.
Björgunarsveitir frá Ólafsfirði og Dalvík hafa verið kallaðar til aðstoðar við björgunarsveitina Stráka á Siglufirði.
Magnús Magnússon formaður Stráka segir að þök, þakkantar, lausamunir og bílskúrshurðir hafi fokið.