Lögreglan í Tyrklandi gerði rassíu í húsakynnum Halk TV, vinsælustu fréttastöð landsins, í morgun. Útsendingum var hætt og fólk hliðhollt stjórnvöldum er komið í æðstu stöður.
Halk TV hefur hingað til verið gagnrýnin á einræðistilburði Receps Erdogan Tyrklandsforseta. Einnig var ráðist í húsleit á heimilum starfsmanna þar sem 11 manns voru teknir fastir, þar á meðal fjölskyldumeðlimir stjórnarformanns Halk TV. Hann er nú í haldi grunaður um mútur og peningaþvætti.
Þetta er aðeins nýjasta útspil stjórnar Erdogans gegn fjölmiðlum. Fyrir tveimur vikum lokaði stjórn Erdogans fréttasíðunni T24 vegna meints hinsegin áróðurs.