Litli spítalinn er einkarekin heilbrigðisþjónusta sem er í undirbúningi við Háaleitisbraut 68. Guðrún Ása Björnsdóttir sérfræðilæknir stendur að verkefninu ásamt hópi heilbrigðisstarfsfólks.
Í fyrri umfjöllun Vísis sagði Guðrún markmiðið vera að brúa bil milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu og létta á heilbrigðiskerfinu. Meðal áherslna væri að veita fólki með langvinna sjúkdóma þjónustu á einum stað.
„Við viljum ekki keppa við kerfið, við viljum létta á því,“ sagði Guðrún í skriflegum svörum sínum.
Erindi um smáslysaþjónustu
Alma segir að eina erindið sem hafi borist vegna verkefnisins hafi komið frá Sjúkratryggingum Íslands í lok september. Það hafi varðað smáslysaþjónustu Litla spítalans sem væri ætlað að draga úr álagi á bráðamóttöku Landspítalans. Erindinu hafi verið svarað fyrir viku.
Hún nefnir fjögur atriði sem skipti máli við mat á slíkri þjónustu: niðurstöður skýrslna um bráðaþjónustu, fjárhagsstöðuna hjá Sjúkratryggingum, mönnun opinberrar þjónustu og reglur um opinber innkaup.
Segir vandann snúa að útskriftum
Alma vísar til tveggja skýrslna, annarrar frá 2022 og hinnar frá nóvember 2024. Hún segir að þar hafi ekki verið mælt með því að slíku úrræði yrði komið á fót.
Bráðamóttakan hafi getað sinnt smáslysum. Um sé að ræða 65 komur á sólarhring og þjónustan sé í aðgreindu flæði á þriðju hæð.
Hún segir meginvandann hafa tengst því að ekki hafi verið hægt að útskrifa aldraða sjúklinga. Hins vegar sé búið að lyfta grettistaki í að vinna á þeim vanda.
Ekkert fjárhagslegt svigrúm
Alma segir þá fjárlagaliði hjá Sjúkratryggingum sem tengjast þjónustunni vera í miklum halla. Þar sé því ekkert svigrúm fyrir slíkt úrræði á borð við Litla spítalann.
Einnig þurfi að gæta þess að ný þjónusta raski ekki mönnun í opinberri heilbrigðisþjónustu.
Í annarri skýrslunni hafi verið varað við því að slík úrræði gætu komið niður á mönnun bráðalækna annars staðar.
Guðrún sagði í fyrri svörum sínum að markmið aðstandenda væri að laða heilbrigðisstarfsfólk heim frá útlöndum og halda því í faginu. Þá væru þau þegar byrjuð að ráða starfsfólk frá útlöndum.
Þyrfti opið innkaupaferli
Ef ríkið vildi ráðast í kaup á slíkri þjónustu segir Alma að fara þyrfti fram opið innkaupaferli samkvæmt útboði eða auglýsingu.
Hún greinir jafnframt á milli rekstrarleyfis, sem komi frá embætti landlæknis, og samnings um þjónustukaup og greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga. Aðstandendur séu ekki komnir með slíkan samning eða vilyrði fyrir honum.
Alma segist hvorki hafa fengið fundarboð né átt fund með aðstandendum verkefnisins og ráðuneytið ekki heldur. Aðstoðarmaður hennar hafi hins vegar fengið kynningu á verkefninu í gær.