Bítillinn Paul McCartney er ekki ánægður með hvernig hæð hans er framsett í væntanlegri fjögurra þátta kvikmynd Sam Mendes um Bítlana.„Við vorum allir jafnháir nema Ringo Starr var aðeins lægri,“ sagði McCartney í hlaðvarpsþættinum Good Hang with Amy Poehler á miðvikudag. „Og ef maður skoðar myndir, þá erum við allir jafnháir.“McCartney útskýrði að út frá fyrstu myndbrotum sem deilt hefur verið frá tökum myndanna virðist Paul Mescal, sem leikur hann, „lægri“ en Harris Dickinson, sem fer með hlutverk hins látna John Lennon.
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana