Þær tókust á um áformin í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Arna Lára er formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og Hildur á einnig sæti í nefndinni.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur kynnt áform um 25 ára hámarkslánstíma, með undanþágum vegna hluta lánveitinga.
Stefnt er að gildistöku um næstu áramót en breytingin hefur ekki verið samþykkt.
Fækki valkostum þeirra sem veikast standa
Hildur sagði verðtryggingu vera úrræði vegna verðbólgu. Lægri greiðslubyrði hefði gert fólki með lítið milli handanna kleift að eignast húsnæði. Stjórnvöld ættu að einbeita sér að því að ná niður verðbólgu.
„Mér finnst að ríkisstjórnin ætti að einbeita sér að því í staðinn fyrir að takmarka valkosti fólks sem hefur mögulega enga aðra kosti í stöðunni.“
Hún líkti verðbólgunni við sjúkdóm og verðtryggingunni við meðal.
„Það myndi enginn læknir horfa á sjúkdóm og kjósa að gera ekkert í sjúkdóminum en fækka valkostum meðalanna, og sérstaklega gagnvart þeim hópi sem er veikastur.“
Hildur tók fram að hún hefði ekki séð frumvarp og byggði gagnrýnina á áformaskjalinu. Bankarnir hefðu þegar þrengt framboð langra verðtryggðra lána vegna markaðsaðstæðna og því væri sýndarmennska að kynna þakið sem nýja aðgerð.
„Verkin tala“
Arna Lára sagði einhvers staðar verða að byrja að draga úr vægi verðtryggingar.
„Ég held að þetta sé gott fyrsta skref að hefja þennan leiðangur af því verðtryggingin, hún hefur einhvern veginn fléttað sig inn í alla anga samfélagsins.“
Hún sagði fólk gjarnan horfa á mánaðargreiðslur en síður kostnað yfir allan lánstímann. Mikilvægt væri að stuðla að hraðari eignamyndun og skoða hvaða úrræði gætu stutt þá hópa sem breytingin hefði áhrif á, sérstaklega fyrstu kaupendur.
Arna Lára hafnaði því að aðgerðin tæki athyglina frá verðbólgu og vöxtum.
„Það að við séum að leggja fram þetta frumvarp er ekkert að taka augun af þeim bolta að ná niður vöxtum og verðbólgu.“
Hún hvatti fólk til að horfa á verk ríkisstjórnarinnar.
„Það eru bara verkin sem tala og allt skiptir þetta máli.“
Hildur svaraði að hún horfði einnig á verkin og væri ekki hrifin.