Tveir af stærstu næturklúbbum landsins sögðust hafa fengið greiddar milljónir fyrir að eiga ekki viðskipti við umboðsaðila Red Bull. Þetta segir Friðjón Hólmbertsson, framkvæmdastjóri heildsölunnar Steindal, í umfjöllun Kveiks á RÚV um viðskiptahætti Ölgerðarinnar.
Steindal tók við umboðinu fyrir orkudrykkinn eftir að samstarfi Red Bull og Ölgerðarinnar lauk árið 2024. Friðjón segir fyrirtæki sitt síðan hafa mætt sífellt meiri hindrunum. Frá því í vor hafi helmingur viðskipta þess við bari tapast.
„Við vorum að tala við tvo stærstu næturklúbbana á landinu. Þá sögðu þeir að þeir hefðu fengið greiddar milljónir fyrir að versla ekki við okkur,“ sagði Friðjón við Kveik.
Hann segir Ölgerðina hafa boðið mikla afslætti og ókeypis vörur til að koma eigin orkudrykk, Eilífri orku, að í stað Red Bull.
Húsleit vegna gruns um misnotkun á markaðsráðandi stöðu
Umfjöllunin kemur í kjölfar þess að Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, föstudaginn 9. október.
Samkvæmt tilkynningu Ölgerðarinnar var húsleitin liður í rannsókn á meintum brotum fyrirtækisins á banni við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Rannsóknin hófst í kjölfar kvartana frá samkeppnisaðilum.
Ásakanirnar sem koma fram í Kveik snúa meðal annars að því að samningar og viðskiptakjör Ölgerðarinnar loki leiðum annarra birgja að viðskiptavinum. Stjórnendur Ölgerðarinnar segjast ekki hafa upplýsingar um að fyrirtækið hafi brotið samkeppnisreglur.
Nemendafélag skuldbundið til að velja vörur Ölgerðarinnar
Meðal gagna sem Kveikur fjallaði um er samningur við nemendafélag við Háskóla Íslands. Þar skuldbindur félagið sig til að bjóða eingöngu vörur Ölgerðarinnar á bjórkvöldum og öðrum viðburðum sínum.
Skilyrðin ná jafnframt til þess hvaða bari og veitingastaði félagið velur til samstarfs. Þeir þurfa að vera í viðskiptum við Ölgerðina. Samningurinn er merktur trúnaðarmál.
Friðjón segir nær öll nemendafélögin sem Steindal hafði samband við í upphafi haustannar hafa verið búin að semja við Ölgerðina.
Í yfirlýsingu sem Ölgerðin sendi frá sér eftir sýningu Kveiks kemur fram að fyrirtækið muni taka styrktarsamninga við nemendafélög sérstaklega til skoðunar. Þar segir jafnframt að viðskiptahættir af þessu tagi hafi lengi tíðkast á markaðnum.
Fékk Eilífa orku þegar hann pantaði Red Bull
Kveikur kannaði einnig hvað viðskiptavinur fær þegar hann pantar vodka í Red Bull. Fréttamaður þáttarins gerði það á bar í miðbæ Reykjavíkur en barþjónninn blandaði drykkinn með Eilífri orku frá Ölgerðinni.
Þegar fréttamaðurinn spurði hvort þetta væri Red Bull fékk hann að vita að um annan, svipaðan orkudrykk væri að ræða.
Í skriflegum svörum til Kveiks segir Ölgerðin að samningar fyrirtækisins séu samkvæmt verklagi ekki útilokandi. Fyrirtækið vilji eðlilega að viðskiptavinir velji vörur þess en hafi ekkert vald yfir þeim eða starfsfólki þeirra og ráði ekki vöruvali þeirra. Þá sé Eilíf orka ódýrari en Red Bull.
Segir útihátíðir einnig hafa lokað á viðskiptin
Friðjón nefnir Þjóðhátíð, Írska daga, Hjarta Hafnarfjarðar og Kótelettuna sem dæmi um hátíðir sem hafi hætt að kaupa Red Bull eftir að Eilíf orka kom á markað.
Í samskiptum sem Kveikur vitnar til sagðist skipuleggjandi Kótelettunnar bundinn af samstarfi við Eilífa orku. Steindal bauð þá heilt bretti af Red Bull án endurgjalds en fékk samt ekki að halda viðskiptunum.
Auglýsingar hafa einnig reynst hindrun. Þegar Steindal vildi auglýsa Red Bull á kvennalandsleik í apríl svaraði auglýsingasölumaður KSÍ að samningur við Ölgerðina kæmi í veg fyrir auglýsingar annarra drykkja.
Friðjón segir kröfu sína einfalda:
„Ég hlýt að geta fengið að vera með vöruna. Það er það eina sem ég bið um.“