Jón Pétur var einn þeirra sem sté í pontu þingsins undir dagskrárliðnum „Störf þingsins“ og sagði að strax árið 2009 hefði Menntamálastofnun áttað sig á því að nýta mætti niðurstöður PISA aukalega, þá vegna sérstöðu landsins.
Á Íslandi taka allir nemar PISA-próf
„Hér taka nefnilega allir nemendur prófið en víðast annars staðar í heiminum er um úrtak að ræða. Þá eru skólar dregnir út og 42 nemendur taka prófið í þessum skólum en á Íslandi taka allir prófið.“
Jón Pétur vitnaði til OECD sem segir um þessa sérstöðu Íslands að þar sem PISA-prófið nái til allra nemenda megi fylgjast með PISA-niðurstöðum einstakra skóla yfir tíma.
„Íslenskir skólar gátu því nýtt sér niðurstöðurnar til að bæta námsárangur nemenda árin 2012 og 2015 þegar niðurstöðurnar voru aðgengilegar en síðan þá hefur ríkið skellt í lás og liggur á rándýrum upplýsingum sem gætu nýst skólunum til að styðja betur við nemendur.“
Mikilvægar upplýsingar óaðgengilegar
Önnur ríki á borð við Lettland og fleiri nýta þessar upplýsingar, að sögn Jóns Péturs, Lettar segja að hver þátttökuskóli geti fengið upplýsingar um eigin árangur í samanburði við aðra skóla og teljist það gríðarlega mikilvægar upplýsingar.
Öðruvísi háttaði hins vegar á Íslandi og það gagnrýndi Jón Pétur harðlega:
„Það að birta ekki þessar upplýsingar er pólitísk ákvörðun — pólitísk — og kippir ábyrgðarkeðju kerfisins úr sambandi. Leyndarhyggja á kostnað árangurs barna. Þetta er óásættanlegt. Að nýta ekki einstaka stöðu Íslands þar sem allir nemendur taka prófið er vanræksla.“
Að sögn Jóns Péturs eru góðar upplýsingar um námsárangur af skornum skammti og það að fela þessar upplýsingar fyrir skólunum sé óþolandi. Upplýsingar sem þessar beri að nýta í þágu barna en ekki vernda kerfið og veika hlekki innan þess.