Þetta segir Finnbjörn Hermannsson í samtali við fréttastofu í morgun, rétt áður en þing Alþýðusambandsins hófst.
Þingið hófst klukkan tíu í morgun á Hilton Reykjavík með ávarpi fráfarandi forseta ASÍ og ávarpi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra.
Um er að ræða 47. þing sambandsins en erjur á milli VR og Eflingar hafa meðal annars sett svip sinn á aðdraganda þingsins. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar hefur sakað Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, um að reyna að sölsa undir sig völd innan sambandsins með tillögu um að fækka varaforsetum úr þremur í einn.
Þær hafa báðar farið mikinn á samfélagsmiðlum undanfarna daga en Sólveig var einnig verulega ósátt með útspil Höllu í viðræðunum við Samtök atvinnulífsins í síðustu viku.
„Auðvitað væri það miður að sjá slíka útgöngu“
Á föstudaginn munu fundargestir greiða atkvæði um hver næsti formaður sambandsins eigi að vera. Þar eru þeir Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur og samfélagsmiðlafræðingur, og Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU, í framboði.
Fréttastofa tók báða frambjóðendur á tal rétt áður en þingið hófst klukkan tíu í morgun. Þar voru þeir spurðir hvað skildi þá í sundur.
„Ég stend fyrir samtali, samstöðu og einingu,“ sagði Georg.
„Ég hef talað fyrir auknu samtali í báðar áttir, á milli félaganna og skrifstofu ASÍ, og mun kröftugri og sýnilegri hagsmunagæslu launafólks og að frumkvæði um framtíð vinnumarkaðarins.“
Erjurnar milli VR og Eflingar voru bornar undir þá en formaður Eflingar sagði það til að mynda til skoðunar að Efling myndi draga sig úr Alþýðusambandinu. Spurðir hvað þeir myndu gera til að sameina ASÍ segja þeir:
„Það er mikilvægt að sameina alla undir regnhlíf ASÍ. Það væri mjög miður ef Efling sæi sér ekki hag í að vera meðal þeirra. Ég legg bara áherslu á það að menn finni samnefnara svo það sé hægt að stilla saman strengi,“ segir Georg.
„Félögum er auðvitað frjálst að haga sínum málum eftir eigin höfði. Ekki viljum við vera að íhlutast um hvernig þau halda á sínum málum. Auðvitað væri það miður að sjá slíka útgöngu. Það væri mikið unnið með að reyna sætta sjónarmið.“
Hvernig blasir þessi tillaga við ykkur um að fækka varaforsetum ASÍ?
„Þetta er auðvitað komið til vegna þess að þetta fyrirkomulag hefur verið mismunandi. Við eigum dæmi um einn varaforseta, tvo og síðan þrjá. Stysta sagan er kannski um þrjá varaforseta. Það hafa oft verið tveir og ég held að það væri mjög æskilegt að finna einhverja málamiðlun til að sætta sjónarmið þar,“ segir Georg.
„Nánast alla sögu ASÍ hefur verið einn varaforseti og þetta hlutverk hefur litla skilgreiningu innan laga sambandsins. Ég myndi vilja sjá, ef ætlunin er að halda þessum þremur varaforsetum, að þeirra hlutverk yrði skýrt, hvernig þeir eiga að vera innan sambandsins. Eins og þetta er núna er það mjög óljóst.“
Gengur sáttur frá borði og vonar að sátt náist
Finnbjörn Hermannsson, fráfarandi forseti ASÍ, segist ganga stoltur frá borði. Hann segir ekki erfitt að segja skilið við embættið nú þegar átök geisa innan sambandsins.
„Það er ekkert nýtt að það sé ágreiningur innan Alþýðusambandsins. Þetta er 150 þúsund manna hreyfing og ef allir væru sammála þá væri eitthvað að í hreyfingunni. Þannig að við erum að fara hér inn í þing sem er að fara að fjalla um framtíðina, hvernig vinnan og verkalýðsbaráttan verður í framtíðinni. Það er mjög mikið að gerast núna í samfélaginu, að það er allt á hreyfingu og ef við tækjum ekki núna umræðu um þetta og gerðum okkur tilbúin fyrir framtíðina þá værum við náttúrulega ekki að vinna vinnuna okkar.“
Hann bindur vonir við að deilurnar varpi ekki skugga á þá mikilvægu vinnu sem fer nú í hönd.
Hann tekur fram að ný verkefni taki nú við og að hann sé ekki að segja skilið við verkalýðsbaráttuna.
„Maður tæmir aldrei borðið þannig lagað af verkefnum. Þannig að hvort sem þessi tími er betri eða verri en annarra, þetta eru bara tímamót sem að ég hef ákveðið að nota til þess að stíga frá borði. Ég er sáttur við það sem ég hef verið að gera fyrir hreyfinguna. Eflaust má finna einhver verkefni sem hefði mátt gera betur eins og í öllu.“
Hann treystir því að öflugur forseti verði kosinn á þinginu. Spurður hvernig útspil Eflingar blasi við honum segir hann:
„Það yrði mikill missir af Eflingu vegna þess að Efling er náttúrulega mjög öflugt stéttarfélag. Ég geri ráð fyrir því að þegar þau setjast niður og velta þessu alvarlega fyrir sér sjái þau náttúrulega eins og önnur félög hér innan Alþýðusambandsins, að styrkurinn felst í samstöðunni innan verkalýðshreyfingarinnar. Alþýðusambandið er náttúrulega byggt upp af ólíkum hópum en sameiginlega eiga þau miklu meira heldur en það sem sundrar þeim.“