Meirihluti ráðsins samþykkti breytingarnar á fundi 12. október og vísaði þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar. Örn Arnarson, fulltrúi Samfylkingarinnar, og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir, fulltrúi Viðreisnar, sátu hjá. Breytingarnar hafa því ekki hlotið endanlega samþykkt.
Sextán ferðir gætu kostað rúmar 28 þúsund krónur
Lagt er til að teknir verði upp tveir gjaldflokkar eftir tekjum, með sömu tekjuviðmiðum og í stuðningsþjónustu bæjarins.
Í lægri gjaldflokknum myndi hver af fyrstu sextán ferðunum í mánuði kosta 787 krónur í stað 673 króna. Það er um 17 prósenta hækkun. Í hærri flokknum yrði gjaldið 1.772 krónur.
Sá sem færi sextán ferðir á mánuði og félli í hærri gjaldflokkinn myndi því greiða 28.352 krónur í stað 10.768 króna. Mánaðarleg útgjöld hans ykjust um 17.584 krónur.
Ferðir umfram 16 kosta nú 1.346 krónur hver. Samkvæmt tillögunni yrði gjaldið 1.772 krónur í lægri tekjuflokknum og 2.362 krónur í þeim hærri. Gjaldskráin yrði uppfærð á þriggja mánaða fresti eftir breytingum á kostnaði við aksturinn.
Telja hækkunina geta fækkað ferðum
Í kostnaðarmati sem fylgir málinu, dagsettu 8. september, er gert ráð fyrir allt að 15 milljóna króna tekjuauka á ári vegna breytinganna.
Þar kemur fram að 50 milljónum króna hafi verið varið til þjónustunnar í fjárhagsáætlun ársins. Kostnaður fyrstu sjö mánuðina hafi hins vegar verið 38 milljónir og stefni í 65 milljónir yfir árið.
Jafnframt er bent á að hækkunin geti haft áhrif á notkun þjónustunnar.
„Það er ekki ólíklegt að ef gjaldhækkun verður þá gæti ferðum fækkað,“ segir í minnisblaðinu.
Undanþágur verði felldar brott
Breytingarnar snúa einnig að því hverjir geti nýtt þjónustuna. Lagt er til að fella brott heimild til að veita akstursþjónustu í undantekningartilvikum vegna tímabundinnar hreyfihömlunar, óháð aldri.
Einnig verði felld brott undanþága sem hefur heimilað eldra fólki á stofnunum, svo sem hjúkrunarheimilum, að fá akstursþjónustu í rökstuddum tilvikum til að sinna einkaerindum eða fyrirbyggja félagslega einangrun. Þetta kemur fram í fylgiskjölum tillögunnar.
Samkvæmt drögum að nýjum reglum yrðu almenn ferðamörk áfram sextán ferðir á mánuði. Heimilt yrði að samþykkja fleiri í rökstuddum tilvikum, þó aldrei fleiri en 32. Akstur fram og til baka telst tvær ferðir.