„Það var flóð í hádeginu. Þá stóð pusið alveg yfir bryggjuna,“ segir Baldur Magnússon, hafnarvörður á Skagaströnd.
Þar hafa hviður farið upp í allt að rúmlega 40 metra á sekúndu. Ölduhæðin hefur ekki verið svo mikil.
„Norðanáttin kemur þannig að það ná ekki að myndast neinar öldur af viti. Sjávarhæðin náði upp á kantinn samt.“
Baldur segir að nokkur kör hafi farið á flug um bryggjuna en fólk hafi verið vel undirbúið undir veðrið.
„Eitt álkar tók kollhnís þvert yfir bryggjuna út í sjó.“ Hann segir að þrátt fyrir það hafi verið vel frá því gengið. „Vindurinn náði taki á því.“
Vindáttin hefur verið nokkuð heppileg upp á höfnina á Skagaströnd en það gæti breyst ef hún snýst.