Um er að ræða undarlegt mál sem hefur farið eins og eldur í sinu samfélagsmiðla síðustu daga. Málið má rekja aftur til síðustu helgar þegar Clarkson heimsótti verslunina Art of the Play, sem selur leikföng, galdradót og ýmsar kúríósur, í Brooklyn í New York. Eftir heimsóknina á laugardaginn fór Clarkson á samfélagsmiðla og sagði farir sínar ekki sléttar.
„Keyrði alla leið niður til Brooklyn til að kíkja á þessa búð sem mér fannst virkilega töff og hafði hugsað mér að kaupa nokkra hluti en það var litið á mig eins og ég ætti ekki efni á því og var sagt að ég gæti fengið eitthvað sambærilegt,“ skrifaði söngkonan á samfélagsmiðlinum X.
„Vá, gaur. Þú ert hálfviti og misstir af stórri sölu,“ bætti hún við. Hún sagði síðan að fólk ætti að kíkja í búðina ef það vildi fá sambærilega upplifun og Vivian, persóna Juliu Roberts, í Pretty Woman.
Í myndinni fer vændiskonan Vivian í tískufataverslun þar sem fordómafull afgreiðslukonan neitar að sýna henni dýrari föt verslunarinnar. Seinna í myndinni snýr hún aftur í búðina, klædd í fínni föt og með hendurnar fullar af búðarpokum og segir við afgreiðslukonuna: „Stór mistök. Stór. Risastór“.
Færsla Clarkson vakti mikil viðbrögð hjá aðdáendum hennar og leiddi til þess að þeir hófu að senda níðskilaboð á verslunina í hrönnum. Búðareigendur Art of Play fundu sig knúna til að bregðast við færslunni og sendu frá sér yfirlýsingu á sunnudag.
Súrrealískt að lenda í árásum aðdáenda
„Kelly Clarkson heimsótti okkur í Brooklyn í gær og spurði út í Molly, einstakan syngjandi og dansandi vélrænan fugl sem spilar lykilhlutverk í galdrasýningunum sem við höldum hérna. Molly er varanlega föst við vegginn og ekki til sölu,“ sagði í færslu búðarinnar á Instagram.
Hins vegar sagði í færslunni að „neikvæð upplifun“ Clarkson væri eitthvað sem allir þeir sem hefðu upplifað fordóma búðarstarfsfólks myndu skilja. Þá ítrekuðu þau að allir væru velkomnir í búðina hvort sem þeir vildu versla eða bara leika sér með hlutina sem væru til sölu.
„Ímyndið ykkur hvað við vorum hissa þegar okkar litla hverfisbúð varð fyrir árásum átta milljóna manna sem hafa aldrei heimsótt búðina. Það er súrrealísk upplifun að vera brennipunktur svo útbreidds hneykslis eftir að ein fræg manneskja minnist á okkur,“ sagði jafnframt í færslunni. Talan vísar í fylgjendafjölda Clarkson á X en ólíklegt er þó að allir fylgjendur hennar hafi tekið þátt í deilunum.
„Eins og vinsæll söngvari sagði eitt sinn: „Það sem drepur þig ekki gerir þig sterkari“,“ sögðu þau að lokum og vísuðu þar í slagarann „Stronger (What Doesn’t Kill You)“ með Clarkson.
Ekki bara dóni heldur líka lygari
Söngkonan var þó ekki sátt við þessi svör verslunarinnar og birti aðra færslu á samfélagsmiðlum, í þetta sinn á Instagram-hringrás sinni.
„Einmitt, einmitt. Akkúrat, þetta var víst ekki til sölu. Það er sem sagt sú útgáfa af sögunni sem Art of Play ætlar að halda sig við,“ skrifaði Clarkson þar.
„Þannig að allt samtalið sem við áttum, þegar ég spurði þig hvort hluturinn væri til sölu um leið og ég benti á verðmiðann, sem hékk á veggnum við titilinn Syngjandi fugl, átti sér sem sagt aldrei sér stað. Samt horfðir þú á mig frá toppi til táar og sagðir í yfirlætislegum tóni: „Já, hann er til sölu, en hann kostar 15.000 dali. Ef þú vilt, get ég fundið eitthvað sambærilegt fyrir þig.“ Ókei, þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari,“ skrifaði hún.
Söngkonan sagðist elska lítil fyrirtæki og hún ræki slíkt sjálf en það gæfi þeim samt ekki frípassa til að koma illa fram við fólk.
„Það er ekki erfitt að vera hlýlegur. Ég bauna aldrei á fólk svona opinberlega en þú, kæri vinur, varst undantekningin. Verslunin þín er virkilega flott en því miður er ekki hægt að segja það sama um þig,“ sagði hún að lokum.
Öryggismyndavél staðfesti frásögn búðareigandans
Búðareigendur birtu aðra færslu til að skýra mál sitt frekar. Þau sögðu starfsmanninn hafa útskýrt fyrir Clarkson að fuglinn sem hún hefði skoðað væri ekki til sölu en hann ætti tvíbura sem væri falur fyrir fimmtán þúsund dali (1,8 milljónir króna).
„Við útskýrðum þetta allt saman fyrir Clarkson. Við buðumst líka til að sýna henni annan vélrænan syngjandi fugl, búinn til af hefðbundnu klukkusmíðafyrirtæki í Þýskalandi, sem hún hefði getað tekið heim með sér þann daginn. Hann kostar um tvö þúsund dali en hún staldraði ekki nógu lengi við til að sjá hann,“ sögðu þau.
„Við höfum reynt að ná beinu sambandi við Kelly til að hreinsa loftið. Við óskum henni alls hins besta og vonum að einn daginn getum við öll hlegið að þessum misskilningi,“ sagði loks.
Myndbandsefni úr búðinni virðist renna stoðum undir frásögn búðareiganda þar sem sjá má Kelly skoða fuglinn, ræða við einn eigandann og rjúka á dyr meðan hann bendir á annan sambærilegan fugl.
Fuglinn kosti nú 1,8 milljarða
Þegar þessu undarlega orðaskaki virtist lokið varð önnur vending í málinu. Adam Rubin, einn eigenda búðarinnar, sagði við USA Today að vélræni fuglinn hefði vakið svo mikla athygli að þau væru búin að hækka verðið í fimmtán milljónir dala (1,8 milljarða króna).
„Það voru svo margir sem spurðu út í fuglinn að við urðum að setja verðmiða á hann. Við töluðum við listamanninn þegar hann kom til að gera við fuglinn og sögðum að einhver væri virkilega áhugsamur þá myndum við tala við hann til að tryggja viðkomandi vélfugl,“ sagði hann.
„Eins og þú sérð höfum við hækkað verðið vegna eftirspurnarinnar. Hann kostar núna fimmtán milljónir dala.“