Marine Le Pen, leiðtogi frönsku Þjóðfylkingarinnar, og mögulega næsti forseti Frakklands, segir að Frakkar ættu að skera niður framlög sín til Evrópusambandsins. Leiðtogafundur ESB hefst í Brussel á morgun, en Le Pen verður þar í dag og fundar með skoðanabræðrum sínum.
Viðbúið er að innanlandspólitík í aðildarríkjunum verði í forgrunni á leiðtogafundinum.
Hér má heyra Björn Malmquist fréttamann í Brussel fara yfir stöðuna í hádegisfréttum útvarps.