Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt flutningafyrirtæki til að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum um 1,6 milljónir króna í vangoldin laun auk dráttarvaxta. Hafði starfsmaðurinn slasast við flutninga á píanói og í kjölfarið látið af störfum. Fyrirtækið hélt því fram að ekkert vinnuslys hefði átt sér stað og að starfsmaðurinn hefði aldrei tilkynnt forsvarsmönnum þess um slíkt. Gögn málsins leiddu hins vegar annað í ljós, að mati dómsins.
Afdrifaríkur flutningur á píanói - Reyndu árangurslaust að neita því að vinnuslys hefði átt sér stað