Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær. Því er sagt ætlað að styrkja umgjörð loftslagsmála, tryggja eftirfylgni með skuldbindingum Íslands og hraða innleiðingu aðgerða. Núverandi lög eru fjórtán ára gömul.
Ákvæði sem á að tryggja eftirfylgni með skuldbindingum landsins felur það í sér að ef losunarbókhald Íslands bendi til þess að ekki náist að uppfylla þær þurfi stjórnvöld að meta fjárhagslegan kostnað þess, gera grein fyrir honum í ríkisreikningi og leggja fram tillögu að markvissari aðgerðum.
Verði frumvarpið að lögum gæti fljótlega reynt á þetta nýja ákvæði. Nýjasta mat Umhverfis- og orkustofnunar frá því fyrr í haust bendir til þess að íslensk stjórnvöld verði órafjarri því að ná þeim samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda sem þau eru skuldbundin til þess að gera í gegnum EES-samninginn fyrir lok áratugarins.
Ísland gæti þá þurft að kaupa losunarheimildir fyrir milljarða króna á næsta áratug þegar bókhald núverandi tímabils Parísarsamkomulagsins verður gert upp.
Loftslagsráð verði vísinda og sérfræðiráð
Í frumvarpinu er einnig lagt til að heimild verði til staðar til þess að starfrækja sérstök framkvæmdateymi þvert á ráðuneyti og stofnanir til þess að hraða innleiðingu loftslagsaðgerða.
Breytingar eru lagðar til á Loftslagsráði, sem er stjórnvöldum til ráðgjafar um loftslagsmál. Það verður að vísinda- og sérfræðiráði samkvæmt frumvarpinu með aukið sjálfstæði og sterkari faglegan grunn.
Einnig lögfesti frumvarpið í fyrsta sinn starfsemi landsnefndar um loftslagsvísindi. Markmið beggja breyting er sagt að ákvarðanir stjórnvalda í loftslagsmálum byggist á bestu tiltæku vísindalegu þekkingu hverju sinni.
Meti ávinning og kostnað aðgerða
Fátt hefur verið um mælanleg markmið eða mat á hverju einstakar loftslagsaðgerðir eiga að skila í áætlunum íslenskra ríkisstjórna umfram almenn losunarmarkmið um tiltekinn samdrátt á tilteknum tíma.
Frumvarp ráðherrans virðist eiga að breyta því að einhverju leyti. Í því stendur að í aðgerðaáætlun stjórnvalda skuli koma fram mat á áætluðum kostnaði ásamt mati á loftslagsávinningi af aðgerðunum að því marki sem það er hægt.
Þá kveður á um að stjórnvöld móti loftslagsstefnu fyrir landið og í henni eigi að marka heildstæða framtíðarsýn sem feli í sér bæði langtímamarkmið og skilgreind milli- og skammtímamarkmið.
Kolefnishlutleysismarkmið hugsanlega endurskoðað
Lagt er til í frumvarpinu að stjórnvöld láti meta sérstaklega fyrir lok næsta árs forsendur markmiðs Íslands um kolefnishlutleysi árið 2024 og hvort það sé raunhæft. Það markmið rataði inn í stjórnarsáttmála Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks árið 2020.
Jóhann Páll sagði þegar hann mælti fyrir frumvarpinu að kolefnishlutleysismarkmiðið hefði verið lögfest árið 2021 án þess að skilgreint hefði verið nákvæmlega hvað fælist í því og hvernig það yrði mælt.
Mögulegt væri að markmiðið yrði endurskoðað eftir að mat færi fram á hvort það væri raunhæft.