Einn hefur verið handtekinn vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á sölu á fölsuðum rafrænum skilríkjum. Sá handtekni er grunaður um að hafa selt hundruðum ólögráða ungmenna fölskuð skilríki í gegnum vef eða snjallforrit fyrir Iphone. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Yfir 300 ungmenni hafa sótt forritið og eru því tengd í gegnum svokallaða VPN-stillingu sem gerir ókunnugum kleift að lesa og breyta netumferð þeirra.
Sambærilegt mál hefur áður komið upp hjá lögreglu.
„En nú hefur bæst við sala á snjallsímaforriti sem virðist vera island.is en er ekki hið eiginlega island.is. Þá var einnig til sölu vara, svokölluð VPN stilling (e. VPN profile) sem heitir „Island Surge VPN“ sem gerir það að verkum að kennitölu notandans er breytt á island.is og í netbönkum. Á farsímum þess sem sett hafa upp þessa VPN stillingu, fer öll netumferð úr símanum í gegnum vefþjóna þess sem seldi þjónustuna,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.
Rannsókn lögreglu hefur leitt í ljós að manneskjan sem hefur selt ungmennunum skilríkin hefur undir höndum raunverulegar kennitölur þeirra, fullt nafn, netfang og í nokkrum tilfellum ljósmynd og þann aldur sem það valdi að sýna.
Kerfið sem börnin hafi sett upp geri stjórnanda þjónustunnar kleift að lesa persónuupplýsingar og bankaupplýsingar úr símanum. Þá sé hægt að breyta umferðinni í símanum.
Lögregla beinir því til foreldra og forráðamanna að tala við börn sín um netöryggi og alvarleika þess að framvísa fölsuðum skilríkjum, slíkt falli undir hegningarlög um skjalafals.