Saksóknari í máli breska grínistans Russels Brand segir hann hafa verið vægðarlausan og einbeittan kynferðisbrotamann þegar aðalmeðferð í máli gegn honum hófst í Lundúnum í dag.
Brand, sem er 51 árs, komst til metorða fyrir framkomu sína í útvarpi, sjónvarpi og síðar bíómyndum. Hann er sakaður um nauðgun og kynferðisofbeldi gegn sex konum. Ákæran er í sjö liðum. Hann neitar alfarið sök.
Riel Karmy-Jones saksóknari segir að meint brot hafi átt sér stað á árunum 1999-2009, um það leyti sem ferill Brands var að ná flugi. Hún lýsti því í smáatriðum fyrir dómi í dag hvaða háttsemi Brand á að hafa gerst sekur um, meðal annars gegn konu sem var 21 árs þegar meint brot voru framin. Hún er sú yngsta meðal kvennanna sem saka Brand um kynferðisofbeldi. Konurnar stigu fram árið 2023 og árið 2025 eftir að meint kynferðisbrot Brands komust í hámæli.
Karmy-Jones segir að Brand hafi ekki látið það á sig fá þegar fórnarlömb hans sögðu nei við tilraunum hans til að sofa hjá þeim. Hann hafi sýnt skeytingarleysi og verið óseðjandi í framferði sínu.
Einnig segir hún að hann hafi gortað sig af því að hafa sængað hjá 5 þúsund konum um ævina og að ætíð þyrfti að segja þeim það sem þær þurfa að heyra. Það væri skýrt dæmi um hve stjórnsamur hann væri.
Ein konan sakar Brand um að hafa hrint sér á rúmið í hótelherbergi eftir að hann skemmti á flokksþingi Verkamannaflokksins í Bournemouth árið 1999. Hann á að hafa nauðgað henni í kjölfarið án þess að nota verjur.
Önnur lýsir því hvernig hann reyndi að draga hana inn á klósettbás á skrifstofum MTV árið 2001, áður en hún streittist á móti og komst undan.
Enn önnur segir hann hafa gripið um brjóst hennar eftir að þau hittust á bar í Lundúnum árið 2004. Hann dró hana í kjölfarið inn á salerni og hafði við hana munnmök án samþykkis og bað hana að vera ekki gleðispillir.
Fjórða konan segir að Brand hafi heimsótt útvarpsstöð sem hún vann fyrir árin 2004 og 2005 og kysst hana af miklu offorsi án samþykkis, gripið um brjóst hennar og rass.
Yngsta konan, sem var 21 árs þegar meint brot átti sér stað 2009, að þau hafi haft samræði um munn og leggöng með hennar samþykki á heimili hans, áður en hann hafði við hana gróf endaþarmsmök án smokks og ekki með samþykki.
Loks segir að hann hafi brotið gegn enn annarri konu síðar 2009 þegar hún vann hjá sjónvarpsstöðinni Channel 4. Starfsmenn úr starfsliði Brands skipuðu henni að nudda hann þegar þau unnu saman við gerð sjónvarpsþáttar. Við það tilefni þrýsti hann andlitinu í klof hennar.
Gert er ráð fyrir að réttarhöldin standi í um sex vikur og hafa þau þegar vakið mikla athygli. Fjölþjóðlegur hópur fréttamanna fylgdist með við dómshúsið í Lundúnum í dag þegar réttarhöldin hófust.