Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er reiknað með að heildarútgjöld ríkissjóðs verði 1.765 milljarðar króna. Mikil áhersla er lögð á að skila hallalausum fjárlögum en áætlaður afgangur er ekki mikill – og ljóst að ekki má mikið út af bregða.
Það er þess vegna ekki víst að þær stofnanir sem sendu inn umsagnir um fjárlagafrumvarpið og báðu um meiri peninga fái óskir sínar uppfylltar.
Ein af þessum stofnunum er Landspítali – en spítalinn hefur reyndar oft áður gert athugasemdir við fjárlagafrumvörp. Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga 2027 verður framlag úr ríkissjóði til spítalans tæplega 123 milljarðar króna.
Ekki haldið í við mannfjölgun og öldrun þjóðarinnar
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala segir ýmsar ástæður fyrir því að sú fjárhæð sem er mörkuð spítalanum á fjárlögum dugi ekki til. Framlög hafi hvorki haldið í við fólksfjölgun né fjölgun eldra fólks, sem þurfi helst á þjónustu spítalans að halda. Fjárveitingar þurfi að aukast að raungildi en þess í stað sé gerð hagræðingarkrafa.
Ef fjárveitingin verður ekki hækkuð verður spítalinn að draga saman seglin eins og hægt er.
Runólfur bendir á að Landspítali gegni gríðarlega mikilvægu hlutverki. Hann sé eina stóra sjúkrahús landsins, eini spítalinn á höfuðborgarsvæðinu og sinni einnig sérhæfðri þjónustu fyrir íbúa um allt land, ásamt að vera helsta vísindastofnun landsins á sviði heilbrigðisvísinda.
„Klíníska þjónustan er alltaf í fyrirrúmi, þannig að óneitanlega kemur samdráttur sérstaklega niður á háskólahlutverkinu,“ segir Runólfur. Ef spítalanum takist ekki að láta enda ná saman, eins og honum ber að gera, sé hætt við að bið eftir þjónustu lengist.
Stytting vinnuviku bjó til 17% mönnunargat
Um 75% af útgjöldum spítalans eru vegna launa. Runólfur segir það hafa verið mikla áskorun fyrir spítalann að takast á við styttingu vinnuviku heilbrigðisstarfsfólks. Hann nefnir sem dæmi að með henni hafi myndast mönnunargat hjá hjúkrunarfræðingum á spítalanum upp á um 17%. Dregist hafi að fá endurmat á launakostnaði og það skýri hallann á yfirstandandi ári að stórum hluta. Að mati spítalans vanti 2,4 milljarða inn í fjárframlög til spítalans 2026 til að mæta þessum launaauka. Nú stefni í að hallinn á rekstri Landspítalans á þessu ári verði um fjórir milljarðar. Teikn séu á lofti um að spítalinn fái þetta bætt og þá eigi að draga verulega úr hallarekstri þessa árs.
En er ekki hægt að gera breytingar innan spítalans til að auka afköst og minnka kostnaðinn, sem gæti þá bætt reksturinn um þessa tvo milljarða sem upp á vantar?
Runólfur bendir á að stöðugt hafi verið unnið að umbótum hjá spítalanum undanfarin ár en á einhverjum tímapunkti séu ekki tækifæri til frekara aðhalds. Þá hafi háskólahlutverk spítalans verið vanfjármagnað lengi, nemendum í heilbrigðisgreinum hafi fjölgað og það vanti fólk með þessa menntun. Vísindastarf sé sömuleiðis vanfjármagnað.
Þak á greiðslum til spítalans, ekki til sérgreinalækna
Í ítarlegri umsögn spítalans kemur meðal annars fram að athyglisvert sé að bera þróun fjárframlaga til spítalans saman við þróun fjárveitinga vegna samnings Sjúkratrygginga Íslands við sérgreinalækna, en þó sérstaklega síðustu ár. Þessi rýni veki óneitanlega efasemdir um hvort rétt sé haldið á stýringu fjárveitinga innan heilbrigðisþjónustunnar hér á landi.
Hér er verið að vísa til samnings sem spítalinn gerði við Sjúkratryggingar Íslands 2021 um þjónustutengda fjármögnun. Runólfur segir að samkvæmt samningnum falli rúmlega helmingur af klínískri þjónustu undir þjónustutengda fjármögnun og spítalinn fái greitt fyrir unnin verk samkvæmt kostnaðarmati. Áætlun er gerð fyrir hvert ár. Ef spítalinn fer 4% umfram það sem kveðið er á um í samningnum fær hann greitt fyrir þau verk að fullu. Fyrir verk umfram þessi 4% fær hann greitt 30% af kostnaði. Spítalinn hefur unnið verk umfram þessi mörk en sjóðurinn sem er notaður til að greiða fyrir þessi umframverk er takmarkaður. Það er með öðrum orðum þak á greiðslum til spítalans. Ekkert þak er á hinn bóginn á greiðslum vegna umframverka sérgreinalækna. „Það sem gert er, það er greitt,“ segir Runólfur, það er að segja í tilfelli sérgreinalækna.
Runólfur segir að vissulega skili einkarekna þjónustan miklu fyrir samfélagið. Þessi munur sé þó ekki við hæfi eða skynsamlegur á sama tíma og verkefni spítalans aukist stöðugt.
Fangelsismálastofnun vill 280 milljónir í viðbót
Landspítali er ekki eina stofnunin sem sendi inn umsögn með ósk um hærri fjárveitingu. Það gerði líka Fangelsismálastofnun sem bendir á að fyrirhugaðar fjárveitingar á næsta ári dugi ekki til að reka fangelsiskerfið á fullum afköstum. Refsingar hafi þyngst og þeim sem dæmdir eru í fangelsi hafi fjölgað verulega. Gæsluvarðhaldsfangar hafi aldrei verið fleiri og hlutfall erlendra ríkisborgara í fangelsum sé nú um 70% sem kalli á nokkra umsýslu, svo sem vegna túlkaþjónustu. Stofnunin óskar eftir að fjárveitingar verði auknar um 280 milljónir.
Biður um 700 milljónir vegna komu- og brottfararkerfis á Keflavíkurflugvelli
Það er töluverð fjárhæð en ekki næstum því eins há og lögreglustjórinn á Suðurnesjum óskar eftir. Í umsögn lögreglustjórans er bent á að embættið standi frammi fyrir miklum áskorunum sem tengjast nýju komu- og brottfararkerfi Schengen-samstarfsins á Keflavíkurflugvelli. Núverandi fjárheimildir geri ráð fyrir um 40 landamæravörðum en fjölga þurfi þeim um 30 að vetrarlagi og um 40-60 að sumarlagi. Kostnaðurinn vegna þessa er talinn vera tæplega 700 milljónir.
Verði Alþingi við óskum Landspítala, Fangelsismálastofnunar og lögreglustjórans á Suðurnesjum aukast útgjöld ríkissjóðs um þrjá milljarða. Eins og fram hefur komið féllst ríkisstjórnin á að hækka ekki krónutölugjöld um meira en 2,5% en þar með lækka áætlaðar tekjur ríkisins um 1,5 milljarð á næsta ári. Samtals eru þá 4,5 milljarðar í aukin útgjöld eða lægri tekjur – og fer þá töluvert að sneyðast um áætlaðan afgang af ríkissjóði – sem á að verða 4,7 milljarðar á næsta ári.
Ekki bjartsýnn á að fá hærri fjárveitingu
Runólfur var því spurður hvort hann væri bjartsýnn á að fá þessa tvo milljarða úr ríkissjóði, umfram það sem kemur fram í fjárlagafrumvarpinu.
„Nei, ég get ekki sagt að ég sé bjartsýnn, vegna þess að það er staðfastlega stefnt að hallalausum fjárlögum og því fylgja óhjákvæmilega sársaukafullar aðgerðir,“ sagði hann.
Flatur niðurskurður sé ekki skynsamlegur og það hljóti að vera hægt að horfa á rekstur einstakra stofnana og kanna hvort svigrúm til aðhalds sé misjafnt.
Landspítali hafi gert mjög vel grein fyrir því að afleiðingar þess að ekki fáist aukið fjárframlag komi niður á þjónustu og á öðrum hlutverkum spítalans.