Sama lægðakerfi og valdið hefur sögulega djúpri lægð hér á landi í morgun veldur einnig aftakaveðri í Færeyjum.
Í Þórshöfn mælast yfir 20 metrar á sekúndu og skriður hafa fallið nærri Fuglafirði á Austurey. Vegum var lokað þar nærri á meðan hreinsunarstarf fór fram.
Þá greinir Kringvarpið, færeyska ríkisútvarpið, frá því að ferjusiglingum hafi verið aflýst.