Tóma sjókví rak á land í Patreksfirði um miðjan september. Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, segir að þau viti af kvínni og eigendurnir vinni við að losa hana.
„Mér skilst að þeir séu að reyna að sæta færis að sækja hana. Mér skilst að hún sé þannig staðsett að það er ekki hlaupið að því að sækja hana. Það er unnið að því að fjarlægja hana úr firðinum.“
Arctic Fish er eigandi kvíarinnar og er ábyrgt fyrir því að fjarlægja hana. Daníel Jakobsson er forstjóri fyrirtækisins.
„Í einhverju veðri um daginn losnaði þetta upp og rak upp í fjöru og menn hafa verið að bíða eftir veðri til þess að tosa þetta út. Það er búið að vera brjálæðislega vont veður og þessir fáu dagar sem er gott veður þarf að nota til þess að sinna fiskinum á kvíunum.“
Kví eins og þessi vegur á bilinu 20-30 tonn og getur valdið tjóni á meðalstórum skipum og öðrum sjófarendum ef hana rekur um fjörðinn óhindrað.
Daníel telur engar líkur á að kvíin fari af stað aftur en segir að vinnulag þeirra gæti verið betra til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Hann segir forgangsmál hjá fyrirtækinu að ná kvínni sem fyrst.
„Þetta er auðvitað ekki eins og það á að vera og við viljum hafa það. Ég tel enga hættu á ferðum eða hættu á tjóni af þessari kví, hún er svo sem á leiðinni úr umferð hjá okkur.“