Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki afhent Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ líkt og stofnunin átti að gera samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Líkt og DV fjallaði um í lok september var slegið á putta Sjúkratrygginga þar sem stofnunin hafi ekki afgreitt beiðni Rótarinnar innan sjö daga frá móttöku. „Sjúkratryggingum Íslands er bent á að gæta framvegis að þessu atriði,“ segir í niðurstöðunni.
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“