Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira í september en sérfræðingar höfðu gert ráð fyrir. Hún mældist 3,7%, sem er örlítið meira en þau 3,6% sem spáð hafði verið. Verðbólga mældist 3,4% í ágúst og hefur hún því aukist tvisvar í röð.
Þetta gerir að verkum að líklegra er talið en áður að seðlabanki Bandaríkjanna hækki stýrivexti annað sinn í röð við næstu stýrivaxtaákvörðun í lok mánaðar. Í gær töldu markaðir um 22% líkur á stýrivaxtahækkun en í dag eru líkurnar taldar 51%.
Tæplega 10% verðhækkun á eldsneyti á stærstan þátt í hærri verðbólgu, eða ríflega helmingshlut. Þessi hækkun skýrist ekki síst af stríðsrekstri Bandaríkjanna í Íran sem, síðan í byrjun árs, hefur þrýst heimsmarkaðsverði á olíu upp.
Þá hafa flugfargjöld sömuleiðis sín áhrif, en hækkanir á þeim er síðan að rekja til hærra eldsneytisverðs.
Róðurinn fyrir bandarísk heimili þyngist því stöðugt og það skömmu fyrir þingkosningar í landinu sem fram fara í næsta mánuði.