Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir gríðarlega mikilvægt að markaðir séu opnir og að það sé ekki komið í veg fyrir að ný fyrirtæki komist inn á þá. Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart.
„Það er auðvitað þannig að við erum í reglulegum samskiptum við fyrirtæki á þessum markaði sem og öðrum, svo við erum að fá fjöldann allan af ábendingum. Þannig það er svo sem ekki margt sem kemur okkur á óvart í þessari reifun.“
Páll segir að lítil fyrirtæki sem upplifi hindranir snúi sér til Samkeppniseftirlitsins.
„Þessi markaður er ekkert öðruvísi hvað það varðar og það er gríðarlega mikilvægt fyrir samkeppni í landinu að markaðir séu opnir og að það séu ekki miklar hindranir og ekki hindranir fyrir nýja aðila til að komast inn á markaði og starfa við hlið þeirra stærri.“
Viðmælendur fréttastofu halda því fram að Ölgerðin hafi útilokað samkeppnisaðila árum saman, Samkeppniseftirlitið hafi um langa hríð fengið ábendingar en brugðist seint við. Páll segir að vel sé hægt að ræða þann vinkil líka, Samkeppniseftirlitið fái fjöldann allan af ábendingum.
„Við höldum sérstaklega utan um ábendingar og við vegum þær og metum og svo er það okkar að meta hvenær eru orðnar nægilega skýrar vísbendingar til þess að farið sé í rannsókn.“
Páll segir ekki liggja fyrir hversu langan tíma rannsóknin taki, það velti á ýmsum þáttum, slíkar rannsóknir taki oft fleiri ár.“
„En er rannsóknin viðameiri heldur en akkúrat þessir hlutir sem þarna voru? Ég get ekki farið út í það á þessu stigi.“