Fjallað var um það á Vísi í dag að úkraínskir hermenn hafi fundið fyrir takmörkunum sem felast í því að þegar móttökustöðvarnar nái tilteknum hraða slökkvi þær á sér. Vegna þessa hafi úkraínskir hermenn misst samband við dróna sem þeir hafi verið að fljúga þegar drónarnir eru komnir á sextíu kílómetra hraða.
Starshield-kerfið er þá sérstakur hluti af Starlink-kerfinu en honum er stjórnað af varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Wall Street Journal sagði í umfjöllun sinni að takmarkanirnar snúi sérstaklega að þeim hluta kerfisins.
Starlink-tæknin er notuð í miklum mæli af úkraínska hernum, meðal annars til samskipta á víglínunni og til að stýra drónum. Musk hefur áður verið sakaður um að beita Starlink til að koma í veg fyrir aðgerðir Úkraínumanna gegn Rússum.
Í nýrri færslu á samfélagsmiðlinum X, sem er í eigu Musk, vísar hann til bandarískra stjórnvalda.
„Starshield-kerfin eru í eigu og undir stjórn bandarískra stjórnvalda. Allar takmarkanir á hraða eða notkun eru ákveðnar af Bandaríkjaher og að lokum af forseta Bandaríkjanna,“ áréttar Musk í færslunni.
Starlink hins vegar sé viðskiptaþjónusta í eigu SpaceX.
Starshield systems are owned and controlled by the US government. Any limits on speed or usage are decided by the US military and ultimately POTUS. Starlink is a commercial service owned and controlled by SpaceX. Usage of Starlink is limited to civilian or defensive activities and cannot be used for offensive military action, as doing so would be inappropriate for a commercial company.
— Elon Musk (@elonmusk) October 14, 2026
„Notkun Starlink er takmörkuð við borgaralega starfsemi eða varnarstarfsemi og ekki má nota hana til hernaðarlegra árása, þar sem slíkt væri óviðeigandi fyrir fyrirtæki í atvinnurekstri,“ bætir hann við.
Með þessu gefur Musk í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanirnar á hernað úkraínsku hermannanna.