Eigendur gleraugnaverslunar sem barst krafa um bótagreiðslu, vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, leggja til að höfundalögum verði breytt, m.a. þannig að greinarmunur verði gerður á vísvitandi og markvissum brotum á höfundarrétti og brotum sem séu ekki af ásetningi. Hvetja eigendur verslunarinnar einnig til þess að staða lítilla og meðalstóra fyrirtækja gagnvart bótakröfum eins og versluninni barst verði styrkt.
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“