Þrjú þök fuku af húsum á Siglufirði í veðurofsanum sem gengur nú yfir mestallt landið. Þakið á heimili Karenar Birgisdóttur, er eitt þeirra sem fauk.
Hún var ein heima skömmu fyrir hádegi þegar hún heyrði gríðarlegan hvell.
„Ég eiginlega áttaði mig ekki alveg strax á því hvað var að gerast fyrr en ég sé ullina leka af þakinu sunnan við, eða hanga niður og áttaði mig svo á að ég sá bara upp í himininn, upp um þaklúguna,“ segir Karen.
Búið er að setja segl yfir þakir og margir hafa aðstoðað fjölskylduna við að bjarga því sem hægt var. Efri hæðin er svo til ónýt.
Fjölskyldan er flutt út í bili en er komin með húsaskjól annars staðar í bænum.
Von er á öðrum hvelli í kvöld en Karen telur að foktjónið verði ekki meira hjá fjölskyldunni. „Við höldum að það sem gat fokið sé fokið, sé bara farið.“