Nokkuð hættulegar aðstæður mynduðust við Reynisfjöru í dag vegna veðurs og mikillar ölduhæðar, fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Landeigendur höfðu virkjað viðbragðsáætlun vegna ölduhæðarinnar og sett upp lokunarpóst klukkan hálf fjögur í dag við afleggjarann að bænum Görðum og gæslumenn á neðra bílastæðinu, þar sem talið er að geti flætt yfir.
Landeigendur segja það hafa verið gert fullseint. Einn þeirra, Ragnhildur Hrund Jónsdóttir, segir í samtali við fréttastofu að fólk statt í fjörunni hafi fengið yfir sig öldu en verið það ofarlega í fjöruborðinu þannig að engin hætta var á að það skolaðist brott.
„Við ákváðum að virkja tilbúna viðbragðsáætlunina vegna ölduhæðarinnar. Hæsti toppurinn er milli 6 og 9 og háflóðið er 7:40 og því mikilvægt að loka.“ Ragnhildur segir landeigendur hafa leiðbeiningarskyldu og ætíð lagt áherslu á að öruggt sé að heimsækja fjöruna.
Eftir að rökkva tekur verður lokunarpóstur áfram þótt reynsla sé sú að enginn fari niður í fjöruna í myrkri. „Þó að við höfum verið ögn sein, þá raungerist há ölduspá ekki alltaf. Það gerðist núna og því stukkum við af stað. Heldur sein er kannski of djúpt í árinni tekið.“
Ragnhildur segir að mögulega hefði mátt senda viðvörunarpóst um ölduhæðina. „Það mættu kannski bara allir fylgjast með sem eru að heimsækja fjörur landsins, sérstaklega þegar svona óveður er í gangi.“