Forseti ASÍ og forsætisráðherra ræddu lærdóminn af kjarasamningunum í ávörpum við setningu þriggja daga þings Alþýðusambandsins í morgun. Báðir frambjóðendur til forseta vilja meira samtal innan hreyfingarinnar. Það var við hæfi að Lúðrasveit verkalýðsins opnaði þingið með því að leika alþjóðlegan baráttusöng verkalýðsins.
Fráfarandi forseti Finnbjörn A. Hermannsson talaði í ávarpi sínu um framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu, sem er heiti þingsins að þessu sinni, og líka um kjarasamningana sem tókst að bjarga fyrir horn í síðustu viku:
„Ég held að allir átti síg á virði þess að hafa fyrirsjáanleika á vinnumarkaði. Við þurfum að byrja næstu samningalotu helst ekki síðar en strax.“
Forsenduákvæði kjarasamningana brast því verðbólgan mældist meiri í ágúst en miðað var við í samningunum.
„Þeir sem taka á sig ábyrgð við gerð svona samninga að þeir standi við það,“ segir Finnbjörn.
Traustið hafi brugðist í þetta sinn og verðbólgan hafi farið úr böndunum.
„Það var vegna þess að þeir aðilar sem höfðu lofað því að þeir ætluðu ekki að standa að miklum hækkunum að þeir fóru að hækka eins og enginn væri morgundagurinn og þá fór verðbólgan upp.“
Í ávarpi sínu þakkaði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Finnbirni og fleirum fyrir aðkomu þeirra að því að leysa hnútinn í síðustu viku:
„Við tryggðum friðinn á vinnumarkaði með samstilltu átaki og nú göngum við í verkin.“
Og hún sagði að Finnbjörn hefði starfað svo lengi í verkalýðsmálum að hún hafi ekki einu sinni verið fædd þegar hann byrjaði.
Tveir bjóða sig fram til forseta ASÍ. Arnaldur Grétarsson hefur ekki verið í forystustörfum innan verkalýðshreyfingarinnar og segir að auka verði samtalið milli ASÍ og aðildarfélaganna:
„Og þannig stundað skilvirkari hagsmunagæslu í þágu launafólks. Og svo vil ég að við höfum meira frumkvæði þegar kemur að því að fást við framtíð vinnumarkaðarins.“
Georg Páll Skúlason formaður Grafíu er búinn að starfa í verkalýðshreyfingunni í 40 ár. Hann vill líka auka samtalið og segir nú breytist störf hraðar með aukinni notkun tækni:
„Það sem að í raun og veru gervigreindin er að ryðja fram í gegnum alls konar forrit og öpp sem að vinnunni stjórna. Þannig að það er heilmikið sem á bíður okkar að takast á við.“
Nýr forseti ASÍ verður kjörinn á föstudag. Finnbjörn sem gegnt hefur embættinu síðan 2023 segist eiga eftir að sakna félaganna:
„Verkalýðsbaráttan er bara eilífðarverkefni og það er aldrei þannig að maður sé með hreint borð að kvöldi, búinn með öll verkefni. Þá er eitthvað að í verkefnastöðunni hjá manni.“