Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld og inn í nóttina, segir Hera Guðlaugsdóttir veðurfræðingur á Veðurstofunni.
„Eins og við gerðum ráð fyrir fór lægðamiðjan inn á Suðaustur- og Austurlandið svona milli fjögur og fimm í dag. Þá dró heldur úr vindi þar í kring, sem sagt Suðvestur-, Suður- og hluta Austurlands,“ segir hún.
Á Norðurvesturlandi er nú appelsínugul hríðarviðvörun í gangi. Þar hefur snúist í norðanátt.
Á Norðurlandi eiga hríðarviðvarnir að taka við hver á fætur annarri með kvöldinu. „Norðausturlandið seint í kvöld og svo Austurland að Glettingi. Þá er um gula hríðarviðvörun að ræða þar,“ segir Hera.
Síðustu viðvaranirnar falla úr gildi á Norðausturlandi í hádeginu á morgun. Búast má við að annað kvöld snúist í suðvestan strekking norðvestanlands með mun skaplegra veður. „Þá eru hlýindi að færast yfir landið.“