Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru móðurfélags Ölgerðarinnar, og fyrrum forstjóri Ölgerðarinnar til tveggja áratuga segir fyrirtækið alltaf hafa hagað sínum samningum þannig að þeir séu í samræmi við lög.
Honum þyki leitt að heyra hvernig minni samkeppnisaðilar upplifa framgöngu Ölgerðarinnar á markaði. Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Ölgerðinni á föstudag og hefur hafið rannsókn á meintri misnotkun fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu.
„Leitt að heyra hvernig minni samkeppnisaðilar eru að upplifa okkar framgöngu“
Í Kveik í gærkvöld sögðu samkeppnisaðilar Ölgerðarinnar að fyrirtækið reyndi markvisst að útiloka vörur keppinauta til að mynda á börum og veitingastöðum.
„Mér þótti leitt að heyra af því hvernig minni samkeppnisaðilar eru að upplifa okkar framgöngu á markaðnum. Við höfum undanfarin áratug hegðað okkur eins og við kunnum að vera í markaðsráðandi stöðu,“ segir Andri.
Allt starfsfólk Ölgerðarinnar hafi fengið þjálfun í samkeppnisrétti. „Við höfum hagað öllum okkar samningum þannig að þeir séu í samræmi við lög. Þannig viljum við vinna og mér þykir leitt ef upplifunin er önnur,“ segir Andri.
Viðskiptavinum frjálst að stýra sínu vöruúrvali
Andri segir fyrirtækið ekki gera einkaréttarsamninga við veitingahús eða bari „Viðskiptavinum er frjálst að stýra sínu vöruúrvali sjálfir,“ segir hann. Samningar, eins og sá sem var sýndur í Kveik og var gerður við nemendafélag, séu álitnir öðruvísi.
Það séu kostunarsamningar og Ölgerðin geri fjölda slíkra við íþróttafélög, félagasamtök og annað slíkt. „Það kann að vera að það þarfnist endurskoðunar og ef við höfum eitthvað gert vitlaust í þessari samkeppni þá að sjálfsögðu bregðumst við við því og leiðréttum það,“ segir hann.
Ekki meðvitaður um nein frávik frá verklagi
En við höfum talað við þónokkra, minni framleiðendur, sem hafa þessa sögu að segja. Er það þá ekki rétt?
„Okkur hefur vaxið ásmegin undanfarna tvo áratugi. Við þekkjum sannarlega að vera minni aðili á markaði. Fyrir tuttugu árum vorum við minni aðilinn,“ segir Andri. Ölgerðin hafi síðan þá verið í öflugri markaðssetningu og vöruþróun, ásamt því að framleiða vörur sínar og prófað á Íslandi.
„Og neytendum hefur líkað við okkar vörur. Við höfum hegðað okkur eins og við kunnum að vera markaðsráðandi og ef einhverjar brotalamir þar á þá mun það koma í ljós í þessari rannsókn hjá Samkeppniseftirlitinu. Ég er ekki meðvitaður um nein frávik frá þessu verklagi okkar og þykir leitt ef þetta er upplifun okkar samkeppnisaðila,“ segir Andri.
„Okkar hagsmunir að hér sé samkeppni“
Hann segist skilja að minni brugghús séu ósátt við sína stöðu. Rekstrarumhverfi þeirra sé erfitt. Örbrugghús hafi stuðlað að betri bjórmenningu og öflugri samkeppni á markaðnum.
„Það er vel. Það eru okkar hagsmunir að hér sé samkeppni og við viljum ýta undir og stunda eðlilega viðskiptahætti. Við teljum að við höfum gert það af heilum hug, segir hann. Það er sannarlega ekki í okkar DNA að hafa rangt við í viðskiptum,“ segir Andri.
Ef að þið, stjórnendur, kannist ekki við þetta, eru þetta þá einstaka starfsmenn hér sem eru að fara út fyrir sitt valdsvið?
„Það hef ég ekki upplýsingar um og þykir leitt ef svo kynni að vera. En okkar verklag er alveg skýrt við gerum ekki einkaréttarsamninga,“ segir Andri.
Einu undantekningarnar séu styrktarsamningar við nemendafélög, tónlistarfólk eða annað slíkt. Sé það ekki í samræmi við lög og reglur, verði það lagað.
„Því að vera stór og sterkur aðili á markaðnum fylgir ábyrgð og við vitum hvernig er að vera minni aðilinn á markaðnum og ég hef fullan skilning á þeirra stöðu á markaðnum.“
Upplýsingar um að Ölgerðin sé ráðandi á ákveðnum mörkuðum liggi ekki fyrir
En er ekki ljóst að þið séuð markaðsráðandi?
„Við höfum hegðað okkur eins og við kunnum að vera markaðsráðandi en þær upplýsingar liggja ekki fyrir vegna þess að við höfum ekki upplýsingar um alla markaði,“ segir Andri.
Þær upplýsingar sem þeir hafi komi úr gögnum frá stórmörkuðum, til að mynda um vatnsmarkað og aðra óáfengja drykkjarvörur.
Ekki Ölgerðin sem lætur bareigendur skipta Red Bull út fyrir Orku
Í Kveik pantaði fréttamaður áfengan drykk í Red Bull á bar. Hann fékk hins vegar drykk blandaðan í orkudrykk frá Ölgerðinni, Eilífa orku. Andri segir Ölgerðina ekkert hafa um vöruúrval að segja eða hvernig vörurnar þeirra séu bornar fram.
„Viðskiptavinir okkar, barir, kjósa og bjóða upp á þessa vöru. Hún þykir góð og er sannarlega ódýrari. Og ég veit að veitingaaðilar, hafa margir hverjir, verið að berjast í bökkum og sjálfsögðu horfa þeir í hverja krónu sem þeir geta velt í rekstrinum,“ segir hann.
Komi í ljós brot á samkeppnislögum gengst Ölgerðin við því
Rannsóknir Samkeppniseftirlitsins geta tekið langan tíma, jafnvel einhver ár. Ætlið þið að ráðast í einhverjar breytingar núna strax eða endurskoðun?
„Við erum að sjálfsögðu að vinna mjög þétt með Samkeppniseftirlitinu og viljum auðvitað leiða þetta mál til lykta sem allra allra fyrst,“ segir Andri.
„Við munum taka allt til skoðunar og eins og ég segi þá höfum við hagað okkar samningagerð undanfarinn áratug, eða svo, í samræmi við það að við kunnum að vera markaðsráðandi,“ segir Andri.
„Þannig ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi við viðskiptavini og ef að slíkt kemur í ljós hjá Samkeppnisstofnun er augljóslega um slys eða mistök að ræða við höfum mögulega farið fram úr okkur, segir hann. Og því munum við alltaf gangast við ef svo kynni að vera en ég hef engar upplýsingar um að svo sé,“ segir Andri Þór.